Átakafundur hjá eldri borgurum Jakob Bjarnar skrifar 15. apríl 2014 11:43 Þórunn, Sigurður og frá dansleik eldri borgara, en víst er að ekki var svona glatt á hjalla á félagsfundi í gærkvöldi. VISIR/VALLI
Mikill átakafundur var hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík í gær. Athygli vekur að á fundinum kom fram vantrauststillaga á stjórn félagsins, sem byggir á óánægju með að Sigurði Einarssyni formanni félagsins, var nýverið sagt upp störfum, en fundarstjóri lagði hana ekki fyrir fundinn. „Já, hann mat það svoleiðis. Ég hef fengið lögfræðing til að kíkja á það og ég held að þetta hafi verið rétt metið hjá fundarstjóra. Ekki var rétt að leggja hana fram því ekki var hægt að reikna með því að fram kæmi svo róttæk tillaga. En, það var „absalút“ meirihluti fyrir því í salnum að lýsa yfir vantrausti á stjórnina,“ segir Sigurður Einarsson í samtali við Vísi.Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, stjórnarformaður Félags eldri borgara (FEB), segist í samtali við mbl.is ekki telja að þessi vantrauststillaga komi á dagskrá. Hún vísar til þess að uppsagnir séu óhjákvæmilegar þegar fjárhagurinn þrengist og ekkert sé í lögum nema örfárra stéttarfélaga þess efnis að tilgreina þurfi ástæður fyrir uppsögn. „Þetta er stormur í vatnsglasi,“ segir Þórunn. Sitt sýnist hverjum um hvort þetta sé stormur í vatnsglasi. Sigurður hefur áður sagt að fjárhagur félagsins hafi ekki versnað undir sinni stjórn, fjárhagur félagsins sé með ágætum – hann telur þetta fyrirslátt – og þarna ráði persónuleg óvild og önnur atriði för. Í fréttatilkynningu sem hann og stuðningsmenn hans sendu út fyrir fundinn segir: „Búast má við átökum á fundinum þar sem mörgum félagsmönnum er heitt í hamsi vegna ruddafenginnar og siðlausrar framkomu stjórnar Félags eldri borgara í Reykjavík gagnvart framkvæmdastjóra félagsins, sem hefur ekkert til saka unnið og þjónað félaginu og félagsmönnum vel á starfstíma sínum, undanfarin tæp 8 ár.“ Hvað varðar næstu skref segir Sigurður hóp í kringum sig og þau þar muni nú ráða sínum ráðum. „Þetta voru mikil átök á fundinum í gær og best að láta þau líða. Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu,“ segir Sigurður. Ólíklegt verður að teljast að málinu sé lokið.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira