Sigmundur svarar fyrir sig Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 2. apríl 2014 00:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson svaraði fyrir ummæli sín á Alþingi í dag. Mynd/Daníel
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson svaraði fyrir ummæli sín um loftslagsbreytingar á Alþingi í dag. Í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í gær sagðist Sigmundur sjá ýmis tækifæri fyrir íslensku þjóðina hvað varðar matvælaframleiðslu á komandi árum, til hliðsjónar við loftslagsbreytingar.Katrín Jakobsdóttir, þingmaður Vinstri grænna lagði fyrirspurn fyrir forsætisráðherra á Alþingi í dag þar sem hún bað hann að skýra orð sín. Spurði Katrín ráðherrann um viðhorf hans gagnvart skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem var gefin út nú á dögunum. „Það er ljóst að þó að Ísland sé kannski ekki á hættulegasta stað í heimi þá getum við alveg eins búist við því að þurfa að mæta ýmsum áhrifum loftslagsbreytinga,“ sagði Katrín. „Mig langaði að biðja forsætisráðherra að skýra þessi orð, hvort það sé nú ekki svo að hann deili þeim þungu áhyggjum sem við hljótum öll að hafa af loftslagsbreytingum í heiminum enda hnattrænt vandamál.“ Sigmundur svaraði því að hann hefði verið spurður um framtíðarmöguleika Íslands í matvælaframleiðslu og svarað á sama hátt og hann hefði gert síðustu fimm ár. „Ísland eins og nágrannalöndin hefðu heilmikil tækifæri á sviði matvælaframleiðslu, en ekki bara tækifæri, heldur skyldu líka,“ sagði Sigmundur. „Við hefðum raunar skyldum að gegna gagnvart heiminum þegar ljóst er að eftirspurn eftir matvælum mun fara mjög vaxandi og aðstæður til þes að framleiða matvæli sunnar á hnettinum vrða mun erfiðari en verið hefur mjög víða.“ Sigmundur talaði um að í Bandaríkjunum væri vatn af skornum skammti á mjög stórum svæðum og því sé landbúnaður að leggjast af sumstaðar. „Þetta er bara eitt af fjölmörgum dæmum eins og háttvirtur þingmaður rakti í fyrirspurn sinni um þessa uggvænlegu þróun, en þar höfum við Íslendingar skyldum að gegna og getum lagt heilmikið af mörkum,“ sagði Sigmundur.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira