Þakklát stjórnvöldum fyrir að hlusta Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. mars 2014 15:24 „Af hálfu bandalagsins voru ákveðin atriði gefin eftir, við gáfum smá afslátt að aðgengi fyrir fólk í hjólastól,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands. „
Það hefur verið tekið tillit til flestra okkar tillagna. Af hálfu bandalagsins voru ákveðin atriði gefin eftir, við gáfum smá afslátt að aðgengi fyrir fólk í hjólastól,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu hefur verið undirrituð breyting á byggingarreglugerð og lýtur breytingin einna helst að ákvæðum reglugerðarinnar um markmið og algilda hönnun. Miðar breytingin fyrst og fremst að því að auka sveigjanleika við gerð íbúðarhúsnæðis. Reglugerðin var sett árið 2010 í henni og byggði hún að hluta til á breyttri hugmyndafræði, svokallaðri algildri hönnun. Samkvæmt hugmyndafræðinni er þess krafist að við hönnun mannvirkja sé frá upphafi tekið mið af þörfum allra, þar á meðal fatlaðra og þeirra sem búa við skerta hreyfigetu. Samtök iðnaðarins kváðu reglugerðina gera húsnæði dýrara og óvistvænna. Reglurnar yrði til þess að dragast myndi úr byggingaframkvæmdum og hefðum í íslenskri byggingalist yrði eytt. Einnig myndu lán hækka. Síðasta sumar skoraði Öryrkjabandalagið á stjórnvöld að fara ekki út í vanhugsaðar breytingar á reglugerðinni og sagði útreikninga Samtaka iðnaðarins vegna breytinga á nýrri reglugerð ekki standast.Mikilvægt að ekki verði frekari skerðingar „Í lögum um mannvirki er skýrt kveðið á um að fara eigi eftir viðmiðunum um algilda hönnun, sem þýðir aðgengi fyrir alla,“ segir Ellen. Öryrkjabandalagið og Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra sendu inn athugasemdir nú í febrúar vegna breytinga á reglugerðinni. Þau lögðu meðal annars áherslu á að í byggingareglugerð yrði skýrt kveðið á um að snúningsflötur fyrir fólk í hjólastól yrði óbreyttur. Ellen segir þau að flestu leyti ánægð með reglugerðina en mikilvægt sé að ekki verði frekari skerðingar á snúningsfleti. Í minnstu íbúðunum sé nú aðeins heimsóknaraðgengi fyrir fólk í hjólastól en ekki aðgengi fyrir þau að búa þar. „Við erum afskaplega ánægð með þetta og þakklát stjórnvöldum fyrir að hlusta á okkur,“ segir Ellen.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira