Reglugerðin gerir húsnæði dýrara og óvistvænna Karen Kjartansdóttir skrifar 25. nóvember 2012 18:43 Friðrik Ágúst Ólafsson, forstöðumaður Samtaka iðnaðarins.
Ný byggingarreglugerð mun gera húsnæði dýrara og óvistvænna, draga úr framkvæmdum, eyða hefðum í íslenskri byggingarlist og hækka lán. Þetta er meðal þess sem kemur fram í máli þeirra Friðriks Ágústs Ólafssonar, forstöðumanns Samtaka iðnaðarins, og Guðrúnar Ingvarsdóttur, verkefnastjóra þróunarverkefna hjá Búseta. Nýja reglugerðin gerir ráð fyrir svokallaðri algildri hönnun í öllum nýjum húsum. Það er að allt húsnæði sé þannig úr garði gert að það henti öllum hvort sem fólk glímir við skerta hreyfigetu eða sjónskerðingu. Er það ekki jákvætt? „Það er akkúrat þess vegna sem við völdum þetta mannvirki hér sem er fyrir aftan okkur. Það er til fyrirmyndar. Allt varðandi hönnun þessa mannvirkis, með hugsuninni um algilda hönnun og annað slíkt," segir Friðrik Ágúst Ólafsson, forstöðumaður Samtaka iðnaðarins. En mannvirkið sem hann vísar til er nýtt þriggjahæða fjölbýlishús með lyftu í Litlakrika í Mosfellsbæ. Friðrik segir að þótt kveðið sé á um að öll frumvörp, bæði til laga og reglugerða séu kostnaðargreind, hafi það ekki verið gert fyrir þessa reglugerð. Þegar Samtök iðnaðins hafi beðið Mannvirkjastofnun um að meta hve mikill auka kostnaður hefði hlotist af því fjölbýlishúsið í Litlakrika yrði byggt samkvæmt reglugerðinni hefðu þau fengist að kostnaðurinn væri óverulegur. Friðrik gefur lítið fyrir þær fullyrðingar, athugun ráðgjafaþjónunstunnar Hannarrs leitt í ljós að kostnaðaraukningin muni nema 10 prósentum -- hið minnsta. „Þrátt fyrir þetta mjög svo hagkvæma dæmi sem við völdum hér þá reiknast okkur til, þegar við tökum ekki næstum alla þætti með í dæmið, að þetta mannvirki hefði orðið 10 prósent dýrara," segir Friðrik. Og húsin koma til með að verða mikið stærri. Þótt gangarnir í Litlakrika séu fremur rúmir og eigi að nýtast fólki í hjólastólum vel þyrfti hann að vera miklu breiðari, sem og allir gangar sem gerðir verða eftir að reglugerðin tekur gildi að fullu. Þá telja þau Friðrik og Guðrún að ekki sé tekið tillit til íslenskra aðstæðna, til dæmis munu kröfur um mjög lága þröskulda í öllum húsum væntanlega auka leka í íslensku regni. Þá verður ekki nóg að vera með lyftu heldur þarf að vera sjálfvirkur dyraopnari og varaaflgjafi fyrir dyraopnarann þótt enginn sem glímir við fötlun búi í húsinu. „Það eru nú þegar íbúðir sem eru sérstaklega hannaðar með þarfir hreyfihamlaðra í huga í húsinu og stæði fyrir fatlaða en það er beðið um að það sé aukið verulega við þessar kröfur," segir Guðrún. Auk þess munu húsin öll stækka. {Það eru gerðar miklar kröfur um aukna einangrun þannig það er fyrirséð að húsið myndi stækka verulega og hráefnið sem færi til byggingarinnar aukast," segir Guðrún. Mun það ekki spara peninga og orku á endanum? „Orkukostnaður þyrfti að áttfaldast til að sá sparðnaður færi að skila sér. Það er það mikill aukinn fjármögnunarkostnaður og stofnkostnaður við bygginguna. Og ef við horfum til íslenskrar orku, sem við teljum nokkuð vistvæna, þá skýtur þetta nokkuð skökku við," segir Guðrún. Lofthæð í bílakjallurum þarf einnig að aukst mikið og hefðbundnir veggir með einangrun að innan munu líklega heyra sögunni til. „Flestir eru á því að það muni hreinlega ekki verða hægt að einangra hús að innan lengur. Fyrir vikið erum við að tala um að það þarf að klæða húsið að utan og þessi hefðbundi íslenski útveggur hann hreinlega hverfur auk þess sem veggirnir munu þykkjast verulega," segir Guðrún. Þau Friðrik og Guðrún segja fyrirséð að þessar breytingar muni verða til þess að vísitalan hækki og þar með lánin okkar. Þetta samrýmist auk þess ekki stefnu velferðarráðuneytisins um að stuðlað verði að hagkvæmum húsakosti og fjölbreyttu eingaformi. Margt gott sé að finna í reglugerðinni. En það þurfi að vanda mikið meira til verka og frekari tíma þurfi til að fara yfir málin.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira