„Ég var á síðustu metrunum án þess að vita það“ Birta Björnsdóttir skrifar 23. mars 2014 20:00
Viðar Garðarsson fór í stóra hjartaaðgerð í september í fyrra eftir að í ljós kom að báðar aðalkransæðar til hjartans reyndust vera alveg stíflaðar. Hann segir ástandið hafa komið sér á óvart, enda varla kennt sér meins. „Einu einkennin sem ég hafði var að þolið var að minnka. Vanalega var nóg að fara í nokkrar vikur í ræktina til að vinna aftur það sem ég hafði tapað. Í þetta sinn gekk það ekki og mér fannst það svolítið skrítið. Læknarnir sendu mig í segulómun sem er þessi nýja þrívíða myndataka og sáu þar að það voru alvarlegar stíflur í gangi. Ég var komin í akút hjartaþræðingu örfáum dögum seinna,“ segir Viðar. „Maður segir stundum í gríni á dauða mínum átti ég von, en þannig var það í þessu tilfelli. Ég var á síðustu metrunum án þess að hafa hugmynd um það.“ Fyrir lá að Viðar þyrfti að undirgangast viðamikla hjartaaðgerð í kjölfar þræðingarinnar, og þá ákvað hann, ólíkt flestum í hans stöðu, að gera heimildarmynd um ferlið. „Þegar maður er búinn að eyða ævinni í því að gera allskonar myndir og alltaf að biðja fólk um að treysta manni fyrir sögum sínum er auðvitað ekki hægt að sleppa þessu tækifæri. Ég þurfti að semja við sjálfan mig um að ég væri til í að sýna þetta, það er auðvitað smá ákvörðun að bera sjálfan sig með þessum hætti,“ segir Viðar. Hann segir kveikjuna af heimildarmyndinni einnig mega rekja til fráfalls góðs vinar. „Ég uppgötvaði að alveg ótrúlega margir ungir Íslendingar deyja úr hjarta-, æða eða lungnasjúkdómum. Örfáum dögum áður en þetta kom upp hjá mér vorum við góðvinur minn Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, saman úti í Lúxemburg að skipuleggja smáþjóðaleika sem á að halda hér 2015. Svo líður rétt rúm vika og ég er kominn í bráðaaðgerð uppá spítala og hann fallinn frá. Báðir kolstíflaðir án þess að hafa hugmynd um það.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira