Skaut mann í andlitið Hrund Þórsdóttir skrifar 25. mars 2014 20:00
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa framið mörg gróf afbrot. Er honum meðal annars gefið að sök að hafa skotið annan mann með loftskammbyssu í andlitið. Brotið átti sér stað í janúar síðastliðnum og leitaði maður á slysadeild eftir að hafa verið skotinn með loftbyssu í andlitið. Skotið fór inn rétt fyrir neðan augabrún og litlu munaði að það færi í augað. Um fíkniefnasala var að ræða sem hafði fengið beiðni um að koma með sendingu að húsi en þar var svo gengið í skrokk á honum, meðal annars með fyrrgreinduma afleiðingum. Hinn kærði neitaði sök en vitni sögðu meðal annars við skýrslutöku að kvöldið áður hefði hann haft í fórum sínum svarta skammbyssu með gashylki í. Maðurinn var síðast handtekinn þann 18.mars síðastliðinn, þá grunaður um líkamsárás. Var þá tilkynnt til lögreglu að tveir menn eltu þann þriðja með hafnaboltakylfu og þótti lýsing á þeim sem beitti kylfunni passa við hinn kærða. Brotaþolinn hlaut áverka í andliti og flísaðist upp úr tönn hjá honum við höggin. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness er hinn kærði sagður undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölda afbrota, meðal annars líkamsárásir, fjársvik, vopnað rán og þjófnað.Þau eru öll talin hafa átt sér stað eftir að hann lauk afplánun síðasta sumar vegna annarra brota. Frá árinu 2006 hefur maðurinn fengið á sig þrettán dóma fyrir margvísleg brot. Að mati lögreglu hefur hann sýnt einbeittan brotavilja og þykja yfirgnæfandi líkur á að hann haldi áfram að brjóta af sér gangi hann laus. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 16. apríl næstkomandi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira