Lífið

"Ég á mér helst þann draum að komast í betra húsnæði fyrir mig og stelpuna mína“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrsti undanúrslitaþátturinn af Ísland Got Talent verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 á sunnudagskvöldið. Sjö atriði af ýmsum toga keppa um atkvæði þjóðarinnar til að eiga möguleika á að komast í úrslitaþáttinn og vinna tíu milljónir króna. 

Alexander Aron er einn af keppendunum en hann syngur og spilar á gítar. Við kynntumst honum aðeins betur.

Fullt nafn: Alexander Aron Guðbjartsson

Aldur: 34

Starf: Einkaþjálfari í World Class og við tónlist 

Símnúmer til að kjósa hann í Ísland Got Talent: 900-9503

Af hverju á fólk að kjósa þig?

Ég get ekki sagt að ég eigi það eitthvað frekar skilið en aðrir keppendur þar sem það eru svo margir rosalega hæfileikaríkir í þessari keppni. Ég held að það eina sem gefi mér sérstöðu í keppninni er að ég sem bæði lögin og textana sem ég flyt, þannig ég vona bara að allir kjósi mig, sem líst vel á mig. Annað get ég ekki beðið um. 

Hver er draumurinn? 

Ég á mér helst þann draum að komast í betra húsnæði fyrir mig og stelpuna mína, komast af leigumarkaðnum sem er auðvitað hrikalegur, það væri æðislegt að geta keypt sér snyrtilega og góða íbúð. Það myndi skapa meira öryggi og létta á fjárhagnum. Tengt tónlist dreymir mig um að halda reglulega tónleika þar sem ég myndi flytja mína tónlist og það væri mikill plús ef maður gæti framfleytt sér líka að stórum hluta á tónlistinni. 

Hvaða lag tekurðu í karókí? 

Hef aðeins tvisvar farið í karókí um ævina en þá tók ég Stairway to Heaven.


Tengdar fréttir

Sagður vera næsti Ari Eldjárn

Fannar Halldór vakti mikla athygli í fyrsta þætti Ísland Got Talent og er orðinn nokkurs konar Youtube-stjarna í kjölfarið. Hann langar að feta grínbrautina.

Mesta áhorf frá upphafi

"Ótrúlega hæfileikaríkt fólk á Íslandi,“ segir Freyr Einarsson, sjónvarpsstjóri 365, um velgengni sjónvarpsþáttanna Ísland Got Talent sem sýndir eru á Stöð 2.

Grætti Þórunni Antoníu

Grunnskólakennarinn Signý Sverrisdóttir heillaði dómnefnd Ísland Got Talent upp úr skónum í áheyrnarprufunum í gær.

Ég er vanur höfnun

Flosi Jón Ófeigsson hótelstjóri og zumbakennari fékk ekkert "Já“ í sjónvarpsþættinum Ísland Got Talent á Stöð 2 í gærkvöldi.

Jón eini dómarinn sem sagði já

Stefán Hannesson, 14 ára, stóð sig vel í hæfileikakeppninni Ísland Got Talent þegar hann söng og spilaði á gítar eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Jón Jónsson gaf Stefáni "já“ því hann vildi sjá Stefán aftur.

Sýndi listir sínar á súlu

Ásta Kristín Marteinsdóttir sló heldur betur í gegn með ótrúlegu polefitness atriði í Ísland got talent. Sjón er sögu ríkari.

"Maður var bara kallaður tossi“

"Maður var bara kallaður tossi og settur í sérdeild sem gerði hluti vandræðalega en ég er úr Breiðholtinu,“ segir Jón Páll Eggertsson sem fékk reisupassann.

Dönsuðu sig áfram

Höskuldur Þór og Margrét Hörn hafa dansað saman í tíu ár, en þau eru einungis 14 og 15 ára gömul. Þau sýndu mikla takta þegar þau tóku sporið í Ísland got talent.

Ástin gaf honum kjarkinn

Kvikmyndin Once Chance fjallar um söngvarann Paul Potts sem sigraði í hæfileikaþáttunum Britain's Got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×