Fjöldi bíla dreginn af bílastæði Sundhallarinnar 10. mars 2014 10:57 Bílastæðin eru ætluð viðskiptavinum sundlaugarinnar. vísir/daníel
Starfsfólk Sundhallar Reykjavíkur hefur látið draga fjölda bíla af bílastæði sundlaugarinnar að undanförnu, en algengt er að bílum sé lagt í stæðin í langan tíma. Stæðin eru ætluð viðskiptavinum sundlaugarinnar en að sögn starfsmanns er algengt að á annan tug bíla taki á móti starfsmönnum að morgni. „Það er svolítið stórt hlutfall af stæðunum,“ segir starfsmaðurinn en hann vildi ekki láta nafns síns getið. Hann segir nokkuð um það að sundlaugargestir hafi kvartað undan því að fá ekki stæði fyrir utan. „Þetta eru sjálfsagt íbúar í nágrenninu sem eiga engin stæði. Við höfum fylgst með þessu nokkra daga í röð, skrifað niður númerin á bílunum og tekið ljósmyndir.“ Stæðin eru gjaldfrjáls en í næsta nágrenni, við Barónsstíg, Njálsgötu og Bergþórugötu, eru gjaldskyld bílastæði í miklum meirihluta. Eigendur bílanna virðast því spara sér peninginn með því að leggja við Sundhöllina.Snjórinn kemur upp um þá brotlegu Starfsmaðurinn segir auðveldara að átta sig á því hvaða bílar eru ekki á vegum sundlaugargesta núna þegar snjóar. „Það hefur verið snjór á bílunum að morgni og svo standa þeir þarna fram eftir degi. Þetta er því ekkert nema vandræði.“ Starfsmaðurinn segir bílunum jafnvel lagt alveg við innganginn, og við skilti þar sem fram kemur að óviðkomandi bílar verði dregnir í burtu. Þá hafi verið reynt að benda eigendum bílanna á að ekki sé leyfilegt að geyma bílana á stæðinu til lengri tíma með því að skilja eftir miða á framrúðum þeirra.Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri rekstrar og þjónustu hjá Reykjavíkurborg, segir málið ekki hafa komið inn á borð til sín. „En ef það eru bílar sem er lagt þarna dögum eða jafnvel vikum saman þá verður auðvitað að gera eitthvað í því,“ segir Steinþór.Starfsmaðurinn segir bílunum jafnvel lagt alveg við innganginn.vísir/daníel
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira