„Hvernig á að sofa hjá Íslendingi“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. mars 2014 11:18 Samkvæmt pistlinum er vænlegt að byrja að drekka seint, helst eftir miðnætti, og bíða inni á einhverjum af helstu skemmtistöðum landsins fram að lokum. Vísir/Getty
Á vefsíðunni Guide to Iceland má finna upplýsingar um hvernig á að sofa hjá Íslendingi. Pistilinum virðist beint til erlendra ferðamanna sem vilja næla sér í rekkjunaut á næturlífinu, en Elmar Johnson er titlaður höfundur hans. Samkvæmt pistlinum er vænlegt að byrja að drekka seint, helst eftir miðnætti, og bíða inni á einhverjum af helstu skemmtistöðum landsins fram að lokum. „Dansaðu þar til gólfið tæmist, inni á B5, Kaffibarnum, Boston eða á Prikinu. Væntanlega mun falleg stúlka eða fallegur drengur sjá þig,“ segir í pistlinum, sem Akureyri Vikublað vakti athygli á í morgun. Veitingastaðir, eftir klukkan þrjú, eru einnig taldir líklegar veiðilendur. Þar eru „stefnumót skipulögð og fólk girnist hvort annað yfir pizzusneiðum þöktum í hvítlauksolíu.“ Mikilvægt þykir að taka niður símanúmer þeirra sem maður hittir um tvöleytið og fyrr, því það þykir alltof snemmt til þess að fara heim eða í eftirpartí. Mælt er með því að senda sms-skilaboð um klukkustund síðar og komast þannig að því hvort hinn aðilinn beri sama hug til manns. „Á Íslandi eru fullt af stöðum þar sem hægt er að finna ástina. Inni á stöðunum er blanda af allskyns fólki; listamönnum, fræðimönnum, atvinnulausum og viðskiptamönnum. Ríkir og fátækirr, ungir og gamlir – allir skella sér á sömu staðina til þess að fara á fyllerí,“ segir í inngangi pistilsins. 187 þúsund manns fylgja Facebook-síðu Guide to Iceland.
Mest lesið Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Innlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Innlent Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent „Hvað er að lögreglunni?“ Innlent „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Erlent Fleiri fréttir Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Sjá meira