Viðskipti innlent

Hlutafjárútboð Sjóvár hefst 27. mars

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Hlutafjárútboð Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefst þann 27. mars og stendur yfir til 31. sama mánaðar.
Hlutafjárútboð Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefst þann 27. mars og stendur yfir til 31. sama mánaðar.
Hlutafjárútboð Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefst þann 27. mars og stendur yfir til 31. sama mánaðar.

Boðnir verða til sölu 366.279.829 hlutir sem samsvarar 23 prósenta útgefinna hluta í félaginu.

Fjárfestum verða boðnar tvær áskrifaleiðir, tilboðsbók A þar sem 10 prósent af útgefnu hlutafé stendur til boða. Þar verður fjárhæð áskrifa á bilinu 100 þúsund krónur til 10 milljóna en öllum hlutum tilboðsbókarinnar verður úthlutað á sama verði, 10,7 til 11,9 krónur á hlut, sem jafngildir um 17-19 milljarða króna markaðsvirði.

Tilboðsbók B inniheldur 13 prósent af útgefnuhlutafé, þar sem lágmarsverð er 11,9 krónur á hlut en hámarksverð er ekkert. Lágmarsfjárhæð áskrifta verður 10.000.001 króna og verður hámarksáskrift í tilboðsbók B 9,99 prósent af útgefnu hlutafé félagsins. Þá verður öllum hlutum í tilboðsbók B einnig úthlutað á sama verði.

Skráningarlýsing Sjóvár var birt í dag og hlutafjárútboðið verður sem fyrr segir frá 27. til 31. mars. Niðurstöður verða birtar þann 3. apríl og Kauphöllin birtir í kjölfarið svar við umsókn útgefanda um töku til viðskipta. Eindagi viðskiptanna verður þann 9. apríl og hlutirnir afhentir daginn eftir þann 10. apríl. Fyrsti mögulegi viðskiptadagur með bréf í Sjóva á Aðalmarkaði Kauphallarinnar verður því þann 11. apríl 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×