Sálfræðiþjónusta gegn brotthvarfi úr framhaldsskólum Birta Björnsdóttir skrifar 19. mars 2014 20:00
Umræðan um brottfall nemenda úr framhaldsskólum hefur verið talsvert í umræðunni og í fréttum Stöðvar 2 í gær sögðum við frá því að brottfallið er talið kosta samfélagið um 52 milljarða króna árlega. Það er því ljóst að mikill ávinningur felst í því að minnka brotthvarf nemenda úr skólum og voru hugmyndir þess efnis kynntar á þingi Sálfræðingafélags Íslands sem fram fór um helgina. Þar var bent á mikilvægi sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanemendur, það hafi meðal annars sýnt sig í tilraunaverkefni sem hefur verið í gangi í Verkmenntaskólanum á Akureyri undanfarin tvö ár, þar sem sálfræðingur hefur verið nemendum innan handar. „Nýjar tölur frá Menntamálaráðuneytinu gefa til kynna að brottfall vegna andlegra veikinda í Verkmenntaskólanum á Akureyri sé heldur en minna en í hinum skólunum sem tóku þátt í rannsókninni. Það er svo sem ekki búið að útiloka neinar aðrar breytur en þetta gefur engu að síður góðar vísbendingar, segir Hjalti Jónsson, sálfræðingur hjá VMA. Hann segir sömu rannsókn sýna fram á það að stór hluti nemenda falli úr skóla vegna andlegra veikinda, sálfræðiþjónusta ætti því að geta hjálpað í mörgum þeirra tilfella, sem leiði af sér sparnað fyrir samfélagið. Þá sé viðvera sálfræðings einnig mikilvæg til að sporna við fordómum gegn andlegum veikindum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir krakkana að sjá sálfræðinginn á vappi með enskukennaranum og upplifa að sálfræðingurinn sé hluti af hefðbundnu skólalífi. Það færir þjónustuna nær krökkunum, eyðir fordómum og eykur líkurnar á því að hægt sé að taka fyrr á málum og koma í veg fyrir vanda sem annars nær að vaxa gríðarlega ef ekkert verður að gert," segir Hjalti.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Sjá meira