Ferðamannavagn í Kópavog í allt sumar Stefán Árni Pálsson skrifar 19. mars 2014 16:07 Á mynd frá vinstri: Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Áshildur Bragadóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs, Guðrún Margrét Örnólfsdóttir markaðsstjóri Smáralindar, Sturla Gunnar Eðvarðsson framkvæmdastjóri Smáralindar og Haraldur Teitsson framkvæmdastjóri Hópbíla Teits Jónassonar. mynd/aðsend
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Smáralindar, Kópavogsbæjar og Hópbíla Teits Jónassonar um að halda úti reglubundnum ferðum ferðamannavagns í allt sumar, ferðamönnum að kostnaðarlausu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ. Ferðamannavagninn mun fara fjórar ferðir fram og til baka frá upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti í Reykjavík inn í Kópavog, og fimm ferðir á fimmtudögum. Ferðirnar hefjast föstudaginn 15. maí og síðasta ferð verður farin sunnudaginn 31. ágúst. Í Kópavogi munu ferðamenn geta valið um að fara með vagninum í Hamraborgina til að upplifa fjölbreytta menningu og listir í listhúsum bæjarins og skreppa í sund, eða halda áfram með vagninum í Smáralind til að versla og njóta góðra veitinga og skemmtunar. Hópabílar Teits Jónassonar mun sjá um akstur ferðamannavagnsins frá miðbæ Reykjavíkur, og tekur ferðamannavagninn 20 farþega í sæti auk þess sem stæði eru fyrir 12 manns. Smáralind hélt úti ferðamannavagni frá miðbæ Reykjavíkur í Smáralind síðastaliðið sumar og gafst það verkefni vel. Á annað þúsund ferðamenn nýttu sér þann möguleika að heimsækja stærstu verslunarmiðstöð landsins og gátu komist leiðar sinnar frítt með einföldum og skjótvirkum hætti. Markaðsstofa Kópavogs sá um að koma á samstarfi milli Smáralindar og Kópavogsbæjar um rekstur ferðamannavagnsins í Kópavog í sumar og er ljóst að með tilkomu samstarfsins aukast möguleikar ferðamanna við að njóta afþreyingar, verslunar, menningar og lista meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira