„Mjög skemmtileg upplifun“ Birta Björnsdóttir skrifar 2. mars 2014 20:00
Það lagði afar góðan ilm úr einum af heitu pottinum í Laugardalslauginni fyrr í dag þegar gestum laugarinnar bauðst að baða sig uppúr tei. „Þetta er í tengslum við sýningu í Spark-Gallerí sem opnar á miðvikudaginn kemur klukkan 5. Við hönnuðirnir sem tökum þátt vorum að vinna út frá tei. Ég fór að hugsa um te og íslenska temenningu, hvernig er hún. Í Bretlandi drekkur fólk te til að ylja sér, en við förum í sund til að ylja okkur," segir Hildur Steinþórsdóttir, arkitekt. „Te er fullt af andoxunarefnum og vítamínum. Þetta er líka bara skemmtileg upplifun og vatnið verður svona silkimjúkt. Svo ilmar þetta líka mjög vel," segir Sólrún Reginsdóttir, hjá Tefélaginu. Áhugasamir geta merkt það inn í dagbókina sína að aftur verður boðið upp á tepottinn í Laugardalslauginni þann 29. mars næstkomandi.Sérfræðingar á ÞjóðminjasafninuGreiningardagur fór fram í Þjóðminjasafninu fyrr í dag en þar bauðst almenningi að mæta með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum safnsins. Þetta er gert til gagns og gamans fyrir eigendur munanna, sem vilja fræðast um uppruna og aldur þeirra, en einnig þykir sérfræðingum Þjóðminjasafnsins gaman að sjá marga af þeim áhugaverðu gripum sem prýða heimili landsmanna.Fjölmenni á matarmarkaðiMikill fjöldi landsmanna lagði leið sína í Hörpuna um helgina en þar fór fram vetrarmatarmarkaður. Fjöldi innlendra matvælaframleiðenda kynntu og seldu vörur sínar og var úrvalið afar fjölbreytt. Lakkrís og kjöt, edik og sultur og ostar og pylsur var meðal þess sem gladdi bragðlauka gesta og gangandi.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira