Erlent

Janúkovítsj bað Pútín að senda hermenn til Úkraínu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Viktor Janúkovítsj, fyrrverandi forseti Úkraínu, (t.v.) og Vladímír Pútín Rússlandsforseti.
Viktor Janúkovítsj, fyrrverandi forseti Úkraínu, (t.v.) og Vladímír Pútín Rússlandsforseti. vísir/getty
Viktor Janúkovítsj, fyrrverandi forseti Úkraínu, bað Vladímír Pútín Rússlandsforseta að senda hersveitir til Úkraínu til þess „að koma á lögum, reglu, friði og stöðugleika“ í landinu. Frá þessu greindi Vítalí Tsjúrkín, sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ), á fundi öryggisráðsins í kvöld.

BBC greinir frá því að umrætt bréf sé dagsett 1. mars en tveimur dögum fyrr réðust vopnaðir menn á þinghús og stjórnarráð borgarinnar Simferópól á Krímskaga. Mennirnir eru taldir vera rússneskir hermenn.

Stöðugt fjölgar í hersveitum Rússa á svæðinu og fyrr í dag var greint frá því að Rússar hefðu gefið úkraínskum hermönnum frest til klukkan 3 í nótt til að gefast upp. Eftir það yrði gerð árás á skagann. Þetta segir varnarmálaráðuneyti Rússlands vera rangt. Engir úrslitakostir hefðu verið settir úkraínska hernum á Krímskaga.

Samantha Power, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ , fordæmdi aðgerðir Rússa og sagði þær hættulegar. Þá íhugar Barack Obama Bandaríkjaforseti refsiaðgerðir gegn Rússum og hefur hann beðið þingið að vinna með ríkisstjórn sinni að leiðum til þess að veita Úkraínu efnahagslega aðstoð.

Janúkovítsj flúði frá Úkraínu til Rússlands á laugardaginn fyrir viku en hann lítur enn á sig sem forseta landsins.

Stutt fréttaskýring:Hvað gerist í Úkraínu?

Frétt AP um atburði dagsins

Tengdar fréttir

ÖSE miðlar málum milli Úkraínu og Rússlands

Vladímír Pútín Rússlandsforseti gekk að tillögu Angelu Merkel Þýskalandsforseta um að koma á starfshópi sem safnaði saman staðreyndum og héldi utan um samskipti vegna málefna Úkraínu. Hópinn leiði Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE.

Rússar sakaðir um innrás á Krímskaga

Rússar segjast sjálfir vera að gæta öryggis. Vopnaðir heimavarnarliðar á Krímskaga segjast óttast innrás fasista frá Kænugarði.

Obama varar Rússa við hernaðaraðgerðum í Úkraínu

Barack Obama bandaríkjaforseti flutti ávarp í Hvíta húsinu í gær þar sem hann varaði Pútín við frekari hernaðaríhlutun í Úkraínu, og sagðist óttast að afskipti rússneskra stjórnvalda ógni stöðugleika á svæðinu.

Allt á suðupunkti á Krímskaga

Sergí Kúnítsjín, fulltrúi Olexander Túrtsjínov, forseta Úkraínu á Krímskaga, hefur sagt í fjölmiðlum að þrettán rússneskar flutningaflugvélar hafi í lent á herflugvelli í grennd við borgina Simferopol í kvöld.

Gunnar Bragi fundar með sendiherra Rússa

Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld leggja þunga áherslu á að Rússar láti umsvifalaust af öllum hernaðaraðgerðum í Úkraínu og fari að alþjóðalögum.

Varað við ferðalögum til Úkraínu

Utanríkisráðuneytið ráðleggur Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Úkraínu og er þeim alfarið ráðlagt gegn ferðum til Krímskaga.

Rússneskir hermenn sitja um herstöð

Forsætisráðherra Úkraínu hefur biðlað til Rússa að afturkalla herlið sitt frá svæðinu sem nú er sagt vera á "barmi hörmunga."

Algjört óvissuástand á Krímskaga

Allt er á suðupunkti á Krímskaga en úkraínski herinn er í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra átaka við Rússa. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fordæmir hernaðaríhlutun Rússa í Úkraínu og hótar að beita rússnesk stjórnvöld viðskiptaþvingunum.

Krefjast friðsamlegra lausna í Úkraínu

Íslensk stjórnvöld leggja þunga áherslu á að Rússar láti umsvifalaust af öllum hernaðaraðgerðum í Úkraínu og fari að alþjóðalögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×