Tímaspursmál hvenær Guðný missir bætur aftur Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2014 17:14 Mynd/Facebook/Pjetur
Tryggingastofnun Ríkisins hefur endurskoðað mál Guðnýjar Lindu Óladóttur, en Vísir birti tölvupóst sem hún sendi forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Guðný er 42 ára öryrki, með ónýt lungu og bíður eftir því að komast í lungnaígræðslu í Gautaborg. Þann 1. mars síðastliðinn fékk hún 26.081 krónu frá Tryggingastofnun, sem er einungis brot af því sem hún er vön að fá. Ástæða þess að Guðný fékk svona lítið er að síðastliðna tólf mánuði hefur hún verið meira en 180 daga á sjúkrastofnun. Upplýsingar stofnunarinnar um sjúkralegu Guðnýjar voru misvísandi og því höfðu greiðslum til hennar verið breytt of snemma. Þær hafi nú verið leiðréttar og henni upplýst um rétt sinn. Í samtali við Vísi segir Guðný að hún muni því fá fullar bætur í mars og í apríl. Þann 1. maí lendur hún þá aftur í sömu stöðu og í hún lenti í 1. mars. „Reglan er enn við lýði og þetta mun koma niður á mér aftur sem og öðrum. Það að ég skildi hafa farið af bótum núna 1. mars var vegna mistaka í legugögnum hjá þeim,“ segir Guðný. „Þetta er bara tímaspursmál og ég á eftir að lenda í þessu aftur 1. maí, því ég er föst hér á Borgarspítalanum og svo fer í út í ígræðslu þegar að því kemur. Hvenær sem það verður bíða mín allavega sex vikna sjúkralega í Gautaborg. Ef ekki lengri.“ Í tilkynningu frá TR segir að í lögum um almannatryggingar komi meðal annars fram að ef elli- eða örorkulífeyrisþegi dvelji lengur en mánuð samfellt á stofnun sem sé á föstum fjárlögum falli bætur hans niður. Ef dvölin hefur varið lengur en samtals 180 daga á síðustu 12 mánuðum. Þó sé hægt að sækja um framlengingu bóta þegar greiðslurnar falli niður. Við afgreiðslu umsókna sé sérstaklega litið til þess hvort framlenging sé nauðsynleg vegna afborgana eða annars rekstrarkostnaðar húsnæðis. Framlenging er heimil í sex mánuði að hámarki. Ef lífeyrisþegi hafi barn á framfæri sínu, á hann rétt á barnalífeyri sem fellur ekki niður ef lífeyrisþegi falli af bótum vegna dvalar á stofnun. Þegar lífeyrisgreiðslur falla niður vegna dvalar á stofnun er heimilt að greiða vasapeninga, sem eru tekjutengdir og eru að hámarki 51.800 krónur á mánuði. Þeir falla alveg niður ef tekjur fara yfir 76.692 krónur á mánuði. Þegar sjúkrahúsvist lýkur fara bætur aftur af stað í þeim mánuði sem viðkomandi er útskrifaður. Þá segir einnig í tilkynningunni að fjöldi einstaklinga sem voru stöðvaðir á bótum vegna sjúkrahúsavistar voru 43 árið 2012 og 46 í fyrra. Ástæða þess að Guðný vakti þó athygli á málinu á Facebook var sú að reglan sem veldur því að fólk missi bætur, er að hennar mati ómannúðleg. Hún vill að Alþingi breyti reglunni. „Þetta er þeirra að laga, sem fyrst,“ segir Guðný. Guðný er nú á Borgarspítalanum en bíður eftir því að komast til Gautaborgar í lungnaígræðslu. „Ég sit bara hér föst og kemst ekki spönn fyrir rassi og vonast til þess að Svíþjóð hringi í mig sem fyrst.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira