Íbúar áreittir, eggjum kastað og kveikt í spegli Kjartan Atli Kjartansson skrifar 7. mars 2014 11:13 Hér fyrir miðju má sjá spegilinn sem kveikt var í. Vísir/aðsent
Hópur drengja hefur valdið íbúum í Vallahverfinu í Hafnarfirði skaða og ónæði undanfarin kvöld. Íbúar hafa fengið egg og snjóbolta í glugga sína og í einni bílageymslu hefur verið kveikti í spegli. Einn íbúi í hverfinu hefur haft samband við lögreglu og skólayfirvöld vegna málsins.Ítrekað áreiti „Svalirnar mínar virðast vera eitthvað skotmark hjá þeim,“ segir íbúi í hverfinu sem vill ekki láta nafn síns getið til þess að forðast viðbrögð drengjanna. „Þeir hafa kastað snjóboltum og eggjum í gluggana hjá mér einhver kvöld í röð. Ég fór út á svalir og stóð þá að verki, eitt skiptið. Þá köstuðu þeir bara snjóboltum í átt að mér og ég þurfti að hörfa,“ segir íbúinn. Hann segir mikil óþægindi hljótast af þessum ólátum – sérstaklega af eggjakastinu. „Maður er með eggjaskurn um allar svalir og ógeð út um allt. Þetta er óþolandi,“ segir maðurinn.Hafði samband við lögreglu Maðurinn er búinn að hafa samband við skólastjórnendur Hraunvallaskóla, sem er skóli drengjanna, og lögreglu vegna málsins. „Ég hef komist að nöfnum tveggja drengjanna og hafði samband við lögreglu og skólann. Ég vil að þetta fari réttar boðleiðir. Skólastjórnendur ætla að gefa frá sér yfirlýsingu vegna málsins og ræða við nemendur um þetta. Svona hegðun líðst ekki.“ Maðurinn hefur heyrt frá fleiri íbúum í hverfinu sem hafa svipaða sögu að segja. „Þeir eru að kasta í glugga hjá fólki, bæði snjóboltum og eggjum. Þeir eru á ferðinni frá níu á kvöldin til að verða hálf ellefu,“ útskýrir maðurin.Kveikt í spegli Vísir hafði samband við konu sem býr í hverfinu. Í bílakjallara í blokkinni sem hún býr í hefur verið kveikt í spegli. „Þetta var fyrir nokkrum dögum. Ég veit ekkert hvort þetta séu nákvæmlega sömu strákarnir, en ég efast allavega um að einhver fullorðinn hafi gert þetta,“ útskýrir konan og heldur áfram: „Einhver hefur farið inn í bílakjallarann og kveikt í þessum spegli. Hann er notaður til öryggis, svo maður sjái bíla sem koma úr gagnstæðri átt.“Þurfti að taka dyrabjölluna úr sambandi Konan hefur lent í meira ónæði. „Já, ég hef lent mikið í því að einhverjir hafa verið að gera dyraat hjá mér. Þetta var orðið svo mikið að ég ákvað bara að taka dyrabjölluna mína úr sambandi,“ segir konan.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira