Ófært á Ísafjörð en rjómablíða á lokuðum flugvelli á Þingeyri Kristján Már Unnarsson skrifar 7. mars 2014 19:35 Þingeyrarflugvöllur. Hann er lokaður vegna skemmda í slitlagi. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Þingeyrarflugvöllur, sem fyrir átta árum var byggður upp fyrir 200 milljónir króna til að vera varaflugvöllur Ísafjarðar, hefur verið lokaður í heilt ár vegna slitlagsskemmda. Engir peningar fást til að gera við. Flugvöllurinn var byggður upp á árunum 2005 og 2006, brautin lengd í 1.200 metra, aðflugsljós sett upp og öryggissvæði lögð í fulla breidd. 190 milljóna króna kostnaður var réttlættur með því að rekstraröryggi flugs til Vestfjarða myndi aukast til muna þar sem aðflug í Dýrafirði væri betra en á Ísafirði og veðurfar skárra. Fréttamenn Stöðvar 2 reyndu það á dögunum að flugi á Ísafjörð var aflýst sama dag og rjómablíða var á Þingeyrarflugvelli og vindpokinn þar varla lyftist. Ekki var lendandi á flugvellinum á Ísafirði en þá var hvöss austanátt í Skutulsfirði. Það var um þetta leyti í marsmánuði í fyrra sem skemmdir komu í ljós í slitlagi brautarinnar á Þingeyri og hefur flugvöllurinn verið lokaður síðan. Frá Isavia fengust þær upplýsingar að viðgerð myndi kosta hátt í eitthundrað milljónir króna og þeir fjármunir væru ekki til. Á Þingeyri eru íbúar ekki sáttir, eins og eigandi gistihússins Við fjörðinn, Sigríður Helgadóttir, lýsti í viðtali í fréttum Stöðvar 2, en um 50 kílómetrar eru á milli Ísafjarðar og Þingeyrar.
Tengdar fréttir Vilja lengja og lagfæra Þingeyrarflugvöll Bæjarráð Bolungarvíkur vill að Þingeyrarflugvöllur verði lengdur og lagfærður hið fyrsta til hagsbóta fyrir ferðaþjónustu og beinan útflutning á ferskum fiski. 30. ágúst 2007 07:22 Þingeyrarflugvöllur vígður Þingeyrarflugvöllur, sem hefur verið endurbyggður, verður vígður 19. ágúst af Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra. 16. ágúst 2006 17:26 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Vilja lengja og lagfæra Þingeyrarflugvöll Bæjarráð Bolungarvíkur vill að Þingeyrarflugvöllur verði lengdur og lagfærður hið fyrsta til hagsbóta fyrir ferðaþjónustu og beinan útflutning á ferskum fiski. 30. ágúst 2007 07:22
Þingeyrarflugvöllur vígður Þingeyrarflugvöllur, sem hefur verið endurbyggður, verður vígður 19. ágúst af Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra. 16. ágúst 2006 17:26