Ummæli Vigdísar endurspegla ekki viðhorf þingmanna almennt Heimir Már Pétursson skrifar 7. mars 2014 20:57
Forseti Alþingis hefur rætt við Vigdísi Hauksdóttur vegna ummæla hennar um starfsmenn þingsins. Hann segir þau ekki endurspegla viðhorf þingmanna almennt og hann sjálfur sé þeim ósammála. Margir þingmenn og samflokksmenn Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins eru ósáttir við ummæli hennar í Monitor Morgunblaðsins í gær, þar sem hún fer yfir muninn á andrúmsloftinu á Alþingi þegar hún kom þar inn sem varaþingmaður á árum áður og nú. En Vigdís segir m.a. „Það er mjög gaman að hafa fengið að upplifa það Alþingi sem var og hét þegar virðing þess var sem mest. ....... starfsfólk þingsins ávarpaði ekki þingmenn og það fylgdi því mikil virðing að vera alþingismaður“. „Eftir að fjölmiðlar byrjuðu að sparka meira í þingmenn þá finnst mér viðhorf starfsmannanna líka breytast. Það þykir mér óskaplega leiðinlegt og það er eins og þessi gömlu góðu hefðir þingsins hafi ekki skilað sér nógu vel inn í nútímann.“ „Starfsmenn þingsins eiga að sjá til þess að allar hefðir séu í heiðri hafðar en nú er þetta orðið alltof frjálslegt fyrir minn smekk.“ Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis hefur rætt þessi ummæli við Vigdísi. „Ég er alveg viss um það að þau endurspegla ekki viðhorf þingmanna almennt og sannarlega ekki mín viðhorf gagnvart starfsfólkinu . Við höfum hér frábært starfsfólk sem vinnur mjög vel að þeim verkefnum sem því er trúað fyrir og samskipti þingmanna og starfsfólksins hafa mér vitanlega alltaf verið óaðfinnanleg,“ sgir forseti Alþingis. Einar hefur hefur mikla þingreynslu og setið á þingi í 23 ár og þar áður oft sem varaþingmaður. Hann segir viðhorf starfsmanna ekki hafa breyst við hrunið t.d. „Starfsfólkið hefur bara gengið til sinna verka eins og það er vant af trúmennsku og hvað mig áhrærir ber ég fullt traust til starfsfólks Alþingis,“ segir Einar.Finnst þér að hún ætti að leiðrétta þetta sem hún sagði?„Hún verður auðvitað bara að standa fyrir sínum ummælum. Þetta eru hennar skoðanir en ég er ósammála þeim,“ segir Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira