Ráðist á starfsmann á bar í nótt 8. mars 2014 10:26 VÍSIR/HARI
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Á fjórða tímanum í nótt var lögregla kölluð til þegar smájeppi hafði snúist á Hringbraut við Sæmundargötu. Ökumaður bílsins stóð þá við hlið bílsins og var áberandi ölvaður að sögn lögreglu. Aðspurður kvaðst ökumaðurinn vera á leið til Hafnarfjarðar. Eitthvað hafði honum fipast þannig að jeppinn snérist nokkra hringi og skall á kantsteinum og varð þar með óökufær. Einnig er talið að bifreiðin hafi rekist utan í fleira. Ökumaðurinn var vistaður í fangaklefa og verður yfirheyrður þegar hann verður í ástandi til þess. Einnig verður kannað hvort að maðurinn hafi ekið utan í fleira á leið sinni í Hafnarfjörð. Tveir aðrir ökumenn voru teknir úr umferð í nótt fyrir ölvunarakstur og fjórir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá var tilkynnt um tvær líkamsárásir í nótt. Á öðrum tímanum réðst gestur á veitingamann á bar við Mýrargötu. Árásarmaðurinn var afar æstur samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Talið er að veitingamaðurinn hafi sloppið lítt meiddur frá árásinni. Laust eftir klukkan tvö í nótt var ráðist á mann í Austurstræti. Sá sem varð fyrir árásinni var með brotna tönn og nefbrotinn. Árásarmaðurinn, karlmaður um tvítugt, var handtekinn skammt frá. Allir fangaklefar á Hverfisgötu voru í notkun í nótt.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira