Sektaður fyrir húfuna 24. febrúar 2014 23:06
Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta og þjálfari karlaliðs Vals, mætti á mótmælin á Austurvelli í dag eins og margir aðrir til að láta í ljós óánægju sína með slit aðildarviðræðna við ESB.Ólafur var tekinn tali í kvöldfréttum Stöðvar 2. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan. Athygli vakti að Ólafur var með húfu með mynd af Köngulóarmanninum þegar fréttamaður tók viðtal við hann. Samkvæmt heimildum Vísis notar Ólafur húfuna mikið þessa dagana og varð hún meðal annars þess valdandi að hann hlaut sekt í sektarsjóði meistaraflokks Vals þegar hann mætti með hana á æfingu. Þetta staðfestir Guðmundur Hólmar Helgason, fyrirliði Vals í samtali við Vísi. „Já það getur passað að við höfum sektað hann fyrir að mæta með þessa Spiderman húfu á æfingu,“ segir Guðmundur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ólafur ber húfu sem vekur athygli. Á verðlaunaafhendingunni á EM í handbolta 2010 í Austurríki mætti Ólafur með hvíta húfu sem minnti einna helst á kollhúfu. Húfan var upphaflega í eigu austurríska tónlistarmannsins DJ Ötzi sem flutti lagið Sweet Caroline en lagið var mikið spilað og setti svip sinn á EM 2010. „Þetta snýst ekkert endilega um það hvort maður sé fylgjandi Evrópusambandsaðild eða ekki, þetta snýst um að standa við orð sín,“ sagði Ólafur Stefánsson í viðtali við Stöð 2 í dag. „Það er ekki endalaust hægt að svíkja kosningaloforð og halda síðan að maður komist upp með það.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Sjá meira