„Hverskyns þöggunartilburðir eru hættulegir lýðræðinu“ Samúel Karl Ólason skrifar 27. febrúar 2014 17:07 IMMI hefur meðal annars áhyggjur af ummælum um pólitíska krossfara í fræðisamfélaginu. Vísir/GVA
IMMI, alþjóðleg stofnun um upplýsinga- og tjáningarfrelsi lýsir yfir þungum áhyggjum vegna óviðeigandi afskipta opinberra valdhafa af frjálsri umræðu í samfélaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni, en þar segir að borið hafi á slíku að undanförnu bæði í garð fjölmiðla og fræðasamfélagsins. „Má þar nefna aukin pólitísk afskipti af RÚV sem og óeðlilega orðræðu þar um, tilraunir ráðuneytisstarfsmanna til að hafa áhrif á fréttaflutning um málefni sem varða ráðuneytin, ummæli um pólitíska krossfara í fræðasamfélaginu og tilmæli til auglýsenda um að sniðganga tiltekna fjölmiðla vegna efnislegrar umfjöllunar þeirra,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að fræðimenn og fjölmiðlar þurfi vissulega að þola málefnalega gagnrýni og ættu á engan hátt vera yfir slíkt hafnir. Þó verði fjölmiðlar að hafa svigrúm til að fjalla um stjórnsýsluna og kjörna fulltrúa og hvernig þeir fari með vald og hagi starfi sínu. Fram hafi komið í dómum hæstaréttar að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar verði að þola að gagnrýni sé beint að þeim þótt orðfæri kunni að vera hvasst, enda gegna fjölmiðlar mikilvægu aðhalds- eftirlits og upplýsingahlutverki. „Tjáningarfrelsið er heilagt þeim sem hafa það að atvinnu sinni að veita stjórnvöldum aðhald og almenningi upplýsingar. Hverskyns þöggunartilburðir eru hættulegir lýðræðinu og IMMI hvetur eindregið til þess að þeir sem gegna opinberum áhrifastöðum virði frelsi og ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og akademískt frelsi fræðimanna,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira