Mikill meirihluti styður áframhaldandi viðræður við ESB Heimir Már Pétursson skrifar 28. febrúar 2014 19:30
Mikill meirihluti kjósenda myndi greiða atkvæði með því að aðildrviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram, yrði boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um það mál. Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að um 82 prósent landsmanna vilji að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um áframhald viðræðna við Evrópusambandið og er meirihluti fyrir því meðal kjósenda allra stjórnmálaflokka, þó minnstur meðal kjósenda Framsóknarflokksins, 52 prósent og 66 prósent meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö var einnig spurt hvernig fólk myndi kjósa ef slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram. Þar er afstaða landsmanna einnig mjög afgerandi, en þó mismunandi milli stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka.Af þeim sem tóku afstöðu myndu rétt rúmlega 64 prósent kjósenda styðja áframhaldandi viðræður en 36 prósent eru andvíg frekari viðræðum við Evrópusambandið. Það kemur ekki á óvart að stuðningurinn við áframhald viðræðna er minnstur meðal kjósenda stjórnarflokkanna. Einungis 25 prósent kjósenda Framsóknarflokksins myndu greiða atkvæði með áframhaldandi viðræðum og rétt rúm 39 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins.Hins vegar myndu 88 prósent kjósenda Bjartrar framtíðar greiða atkvæði með viðræðunum, tæp 95 prósent kjósenda Samfylkingarinnar, 65 prósent kjósenda Vinstri grænna og 75 prósent kjósenda Pírata. Hér er aðeins greint frá niðurstöðum þeirra sem taka afstöðu, en hlutfall óákveðinna er nokkuð svipað hjá kjósendum flokkanna, þó lægst 3 prósent hjá kjósendum Samfylkingarinnar og hæst 20 prósent hjá kjósendum Pírata.Nánar verður fjallað um könnunina í Fréttablaðinu á morgun.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira