Sport

Mancuso leiðir alpatvíkeppnina eftir brunið | Myndband

Julia Mancuso frá Bandaríkjunum náði bestum tíma í bruni í alpatvíkeppni kvenna á vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í morgun og stendur því best að vígi fyrir svigið á eftir.

Mancuso fór niður brekkuna á 1:42,68 mínútum en Lara Gut frá Sviss var önnur 1:43,15 mínútum.

Heimsmeistarinn í greininni, Tina Maze frá Slóveníu, var með þriðja besta tímann en hún kláraði á 1:43,54 mínútum.

Í alpatvíkeppni er keppt í bruni og svigi og samanlagður tími telur til sigurs. Svigið hefst klukkan 10.50 og er í beinni útsendingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×