Lögmaður í Kaupþingsmálinu fær ekki að verja einn ákærðu Jóhannes Stefánsson skrifar 17. febrúar 2014 16:59 Kaupþingsmenn eru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun. Vísir/GVA
Jóhannes Bjarni Björnsson hrl. fær ekki að halda uppi vörnum fyrir Ingólf Helgason í Kaupþingsmálinu vegna hugsanlegra tengsla hans við Bjarka Diego, einn þeirra sem er ákærður í málinu. Þetta kom fram í fyrirtöku sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sérstakur saksóknari fór þess á leit að Jóhannes fengi ekki að verja Ingólf vegna þess að ekki væri loku fyrir það skotið að hann yrði kallaður fyrir dóm sem vitni í málinu. Ástæða þess er sú að skýrsla um símtal á milli Jóhannesar og Bjarka var lögð fram fyrir dóminn í dag, sem gaf saksóknara mögulegt tilefni til þess að Jóhannes myndi fá réttarstöðu vitnis, þó að það lægi ekki fyrir að svo stöddu. Dómarinn féllst á þessa beiðni saksóknara en allir verjendurnir í málinu mótmæltu þessari tilhögun. Jóhannes Bjarni taldi að skýrslan væri of seint fram komin og að Ingólfur myndi ekki njóta réttlátrar málsmeðferðar vegna þessa. Jóhannes mun óska eftir því að Hæstiréttur skeri úr um réttmæti ákvörðunar héraðsdóms.Þetta kemur fram á vef RÚV.
Markaðsmisnotkun Kaupþings Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira