Lífið

Frænka Kate Middleton er fatafella

Ugla Egilsdóttir skrifar
Katrina Darling er fjarskyld Kate Middleton.
Katrina Darling er fjarskyld Kate Middleton. Getty Images
Kate Middleton á fjarskylda frænku sem er fatafella og gengur undir sviðsnafninu Katrina Darling.

Hún hætti að vinna í banka eftir konunglegt brúðkaup frænku sinnar og gerðist fatafella.

Á meðfylgjandi myndum sést að hún notar vensl sín við konungsfjölskylduna sem innblástur í gamansömum dansatriðum.

Hún dansar jafnan með kórónu á höfðinu með kastala úr pappamassa á sviðinu við lagið God Save the Queen.

Ef vel er að gáð má sjá kastala á bak við Katrinu Darling.Getty Images
Katrina er með fjölda tattúa. Hún sat fyrir fáklædd á myndum fyrir tímaritið Inked til að sýna tattúin.

Í viðtali við blaðið sagðist hún hafa fengið sér fyrsta tattúið þegar vinir hennar fóru á Glastonbury-hátíðina en hún fékk ekki að fara.

Fyrsta tattúið var mynd af ís í brauðformi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×