Íslenski boltinn

Jordan Halsman í Breiðablik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Halsman.
Jordan Halsman. Vísir/Anton
Knattspyrnudeild  Breiðabliks hefur náð samkomulagi við skoska vinstri bakvörðinn Jordan Halsman um að hann leiki með Breiðabliksliðinu á komandi tímabili í Pepsi-deild karla en þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu Blika.

Jordan Halsman spilaði 20 leiki með Fram í Pepsi-deildinni á síðasta ári en hann var með eitt mark og þrjár stoðsendingar úr vinstri bakvarðarstöðunni.

Halsman vann titil á sínu fyrsta og eina tímabili á Íslandi en hann varð bikarmeistari með Fram. Hann lagði upp eitt marka Fram í bikarúrslitaleiknum og skoraði í vítakeppninni.

Blikar hafa styrkt sig aftarlega á vellinum í vetur en liðið missti Sverrir Inga Ingason og Kristinn Jónsson út í atvinnumennsku og þá verður Þórður Steinar Hreiðarsson ekki heldur með liðinu í sumar. Damir Muminovic kom frá Víkingi Ólafsvík og Arnór Sveinn Aðalsteinsson er kominn heim úr atvinnumennsku í Noregi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×