Sport

Vonn verður ekki með í Sochi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lindsey Vonn verður ekki með á ÓL í Sochi.
Lindsey Vonn verður ekki með á ÓL í Sochi. Nordic Photos / Getty
Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn verður ekki á meðal þátttenda á vetrarólympíuleikunum í Sochi vegna meiðsla. Þetta tilkynnti hún í dag.

Síðasta ár reyndist Vonn erfitt. Hún var lengi frá eftir að hafa meiðst illa á hné í heimsmeistarakeppninni sem fór fram í Austurríki í febrúar siðastliðnum.

Hún sneri svo til æfinga í september en skaddaði krossband í sama hné í nóvember. Hún gaf þó ekki upp vonina um að ná leikunum í Sochi en nú er ljóst að hún þarf að fara í aðgerð.

„Ég gerði allt sem ég gat til að ná nægilega miklum styrk en raunin er sú að hnéð er ekki nógu stöðugt til að keppa við þá bestu,“ skrifaði Vonn á Facebook-síðu sína.

Hún ætlar nú að einbeita sér að því að ná fullri heilsu fyrir HM 2014 sem fer fram á hennar heimavelli, Vail í Colorado. Leikarnir í Sochi hefjast þann 7. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×