Ragnar: Frétti þetta fyrst á Facebook Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2014 12:07 Ragnar í leik með FCK. Nordic Photos / Getty
Ragnar Sigurðsson hafði ekki heyrt af meintum áhuga rússnesks félags á sér en danskir fjölmiðlar greindu frá honum í morgun. Ragnar var nýkominn heim frá æfingu með liði sínu, FCK í Danmörku, þegar að Vísir heyrði í honum. „Það vissu allir af þessu á æfingunni enda allir búnir að lesa greinina í Ekstra Bladet,“ sagði Ragnar. „En ég hafði ekkert heyrt af þessu sjálfur. Ég veit ekki hvort það sé til eitthvað í þessu. Mér var fyrst bent á þetta á Facebook í morgun.“Sölvi Geir Ottesen, fyrrum liðsfélagi Ragnars í FCK, samdi við FC Ural í Rússlandi í sumar og því væri auðvelt fyrir Ragnar að leita ráðlegginga. „Ég hef aldrei spáð í því áður hvernig það væri að spila í Rússlandi. En Sölvi hefur talað mjög vel um dvöl sína þar og maður er því allavega ekkert neikvæður fyrir þessu. En ég hef aldrei velt þessu fyrir mér að neinni alvöru,“ sagði Ragnar. Ragnar og Rúrik Gíslason, leikmenn FCK, fengu ekki heimild hjá félagi sínu til að spila æfingaleik með íslenska landsliðinu gegn Svíþjóð síðar í mánuðinum en sá leikur fer fram í Abú Dabí. „Maður vill auðvitað spila alla landsleiki, sérstaklega gegn liðum eins og Svíþjóð. En það varð snemma ljóst að við myndum ekki fara og þá velti ég þessu ekkert meira fyrir mér. Þetta er bara svona.“
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Sjá meira