Gefa í skyn að fjármálaráðherra hafi skrökvað Heimir Már Pétursson skrifar 8. mars 2014 18:58
Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa í skyn að Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra, hafi sagt Alþingi ósatt til um kostnað við málaferli seðlabankastjóra í svari á Alþingi. Katrín segir það alrangt enda komi það fram í svarinu. Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokksins og sérstakur aðstoðarmaður forsætisráðherra segir í bloggfærslu á Eyjunni í gærkvöldi að Katrín Júlíusdóttir hafi sagt Alþingi ósatt í skriflegu svari sem hún gaf honum varðandi hver bæri kostnað af málaferlum seðlabankastjóra gegn bankanum vegna launakjara hans. En upplýst hefur verið að bankinn greiddi þann kostnað. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekur málið svo upp á sinni bloggsíðu og furðar sig á málinu. Katrín svarar fyrirspurn Ásmundar í janúar 2013 en héraðsdómur hafði kveðið upp dóm í október um að hver málsaðili um sig greiddi sinn málskosnað og kemur það fram í svari Katrínar. Varst þú að fara með ósannindi í svari þínu á Alþingi í janúar í fyrra? “Nei, það var ég alls ekki að gera og það kemur beinlínis fram í svarinu að málaferli standi enn yfir og því byggi upplýsingarnar á þeirri stöðu. Þannig að á þeim tíma voru þetta þær bestu upplýsingar sem við höfðum,” segir Katrín. En þegar svarið var gefið hafði Hæstiréttur ekki kveðið upp sinn dóm, en í svari Katrínar segir: “Seðlabankastjóri áfrýjaði dómi héraðsdóms til Hæstaréttar, sem hefur tekið málið til meðferðar, og því liggur ekki fyrir á þessari stundu hvort þessi niðurstaða er endanleg”. En Hæstiréttur kvað upp sinn dóm skömmu fyrir kosningar í fyrra. “Og við höfðum ekki fengið neinar upplýsingar um að það hefði verið tekin ákvörðun um að greiða kostnað seðlabankastjóra í málaferlunum,” segir Katrín.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira