Ferðamenn heillast upp úr skónum í Hallgrímskirkju Heimir Már Pétursson skrifar 8. mars 2014 19:09
Það sveif heilagur andi yfir vötnum í Hallgrímskirkju í morgun þegar Mótettukór kirkjunnar æfði söngverk ýmissra tónskáld við kveðskap Hallgríms Péturssonar. Tónleikarnir verða í kirkjunni í morgun en fjöldi ferðamanna heillaðist upp úr skónum á æfingunni í dag. Fjögurhundruð árum eftir fæðingu Hallgríms Péturssonar er hann enn að blása tónskáldum andann í brjóst. En Mótettukórinn mun flytja úrval laga við sálma hans á tónleikum í Hallgrímskirkju annað kvöld. Fjöldi erlendra ferðamanna naut óvæntra tónleika kórsins á æfingunni í morgun og voru heillaðir bæði af kirkjunni og tónlistinni. Þeirra á meðal voru Sir William Gage, dómari við áfríunardómstól Englands sem nú hefur sest í helgan stein og eiginkona hans Lady Gage. En þau voru að enda fjögurra daga ferðalag sitt um Ísland og voru frá sér numin af fegurð kirkjunnar og tónlistarinnar. „Eftir þessa óvæntu tónleika förum við með fallegar minningar frá Reykjavík,“ sagði Lady Gage meðal annars og dómarinn fyrrverandi sagði hljómburðinn frábæran en hann þekkir töluvert til kirkjutónlistar þar sem hann hefur verið formaður í sókn Coventry kirkju. Hörður Áskelsson stjórnar Mótettukórnum að vanda og segir lykilinn að því að tónlistarmenn og tónskáld heillist enn af kveðskap Hallgríms Péturssonar vera einfaldan. „Það er náttúrlega andagift og snilld. Hans list er á einhverju því plani að það heillar fólk enn þann dag í dag,“ segir Hörður. Horfa má á brot úr æfingu kórsins hér fyrir ofan, viðtal við Hörð og bresku aðalshjónin Sir. William Gage og Lady Gage.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira