Svaf ekki hjá geitungum Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. júní 2014 14:05 Búið var á stærð við golfkúlu. Mynd/Bjarni Ingimarsson
Bjarna Ingimarsson stöðvarvörð rak í rogastans þegar hann mætti til vinnu í Írafossstöð í Soginu nú á mánudagskvöld. Hafði þar einhver geitungadrottingin komið upp búi utan á gardínukappa í einu hvíldarherbergi virkjunarinnar sem staðið hafði autt í um víkutíma. Bjarna varð ekki um sel og ákvað að skipta um herbergi hið snarasta. „Ég var nú bara kominn upp í rúm þegar ég tók eftir því,“ segir Bjarni í samtali við Vísi og bætti við að hann hafi þó einungis séð einn geitung á ferli. Geitungabúið er á stærð við golfkúlu enda höfðu drottningin og hennar slekti fengið nægan tíma til að athafna sig. Búið héngi þó enn uppi. „En ég er að fara í það að taka það niður,“ segir Bjarni léttur í bragði. Í samtali við fréttavefinn Sunnlenska segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, að af myndinni að dæma sé þarna á ferðinni klassískur trjágeitungur. „Hann er ólíkindatól og getur tekið upp á þessu, að koma inn um glugga og gera sér bú þar fyrir innan.“
Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Sjá meira