Perónuvernd hafnar kröfu ráðuneytis um endurupptöku Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. maí 2014 07:15 Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Menntamálaráðuneytið telur Persónuvernd hafa tekið ákvörðun í framhaldsskólamáli án þess að kynna sér það til hlítar. Fréttablaðið/GVA „
Stjórnvöld geta ekki komið í veg fyrir að Persónuvernd taki ákvörðun í tilteknum málum sem til meðferðar eru hjá stofnuninni með því að svara ekki fyrirspurnum hennar eða óskum um skýringar,“ segir Persónuvernd sem hefur synjað kröfu menntamálaráðuneytisins um endurupptöku á máli sem snerti persónuleikapróf í framhaldsskólum. Þann 13. mars síðastliðinn tók Persónuvernd ákvörðun í máli sem hófst með erindi eins skólameistara í fjölbrautarskóla sem benti á að menntamálaráðuneytið hefði kynnt kröfur um að nemendur sem lykju framhaldsskólaprófi fengju prófskírteini með upplýsingar um almenna þekkingu, leikni og hæfni viðkomandi. Skólameistarinn taldi þetta verða erfitt án þess að safna viðkvæmum persónuupplýsingum. Persónuvernd sagði lög um framhaldsskóla ekki fela í sér heimild til vinnslu persónuupplýsinga um annað en námsmat og vitnisburð þeirra nemenda. Menntamálaráðuneytið krafðist endurupptöku. „Hér virðist vera um að ræða einhvern misskilning að ræða af hálfu stofnunarinnar,“ segir ráðuneytið sem „gerir alvarlegar athugasemdir“ við þá greiningu sem fram kemur í forsendum úrskurðar stjórnar Persónuverndar. „Ráðuneytið hefur ekki enn þá gefið út neinar fyrirmyndir eða eyðublöð um hvað tilgreina skuli í umsögn framhaldsskóla um almenna þekkingu, leikni og hæfni á prófskírteinum nemanda. Afgreiðsla stjórnar Persónuverndar byggist að þessu leyti á einhliða málflutningi skólameistarans.“ Persónuvernd hafnar því að hafa misskilið málið og ásökunum ráðuneytisins vegna þess að ákvörðun hafi verið tekin án þess að það kæmi sjónarmiðum sínum að. Ráðuneytið hafi endurtekið fengið fresti til þess. Menntmálaráðuneytið.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira