Óvænt loðnuganga fyrir vestan 4. mars 2014 13:14 Vísir/HB Grandi
Vísbendingar eru nú um að óvænt loðnuganga að vestan, sé að koma inn í veiðarnar, eftir að loðnuskip fékk 350 tonn af loðnu í einu kasti út af Ísafjarðardjúpi undir kvöld í gær. Flotinn, sem þá var við Snæfellsnes, sigldi eins og hann lagði sig á fullri ferð á svæðið í nótt og er nú farinn að leita fyrir sér. Þau hafa dreift úr sér og leita skipulega en um tíu leitið í morgun höfðu þau ekki fundið góðar torfur, hvað sem verður í dag. Guðmundur Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni sagði í viðtali við Fréttastofuna, að þessi loðna tilheyrði ekki torfunni sem nú væri við Snæfellsnes og komin að hrygningu. Það sæist gleggst af því hversu hrognin í vestanloðnunni væru mun skemur komin á þroskabrautinni en í loðnunni við Snæfefllsnes. Þetta gæti því verið forboði vestangöngu, en dæmi eru um að loðnan komi úr norðvestri og beint að Vesturlandi, í stað þess að synda fyrst hringinn í kringuum landið eins og venjan er. Ef þetta verður raunin, skapast að líkindum svigrúm til að bæta vel við kvótann, sem er óvenju lítill að þessu sinni, þannig að milljarða viðbótatekjur gætu verið í augnsýn. Tvö hafrannsóknaskip eru væntanleg á svæðið utan Ísafjarðardjúps, til að kanna málið nánar.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira