Stamandi útvarpsstjóri Birta Björnsdóttir skrifar 4. mars 2014 20:00 Árni Heimir Ingimundarson, útvarpsmaður og formaður Málbjargar.
Útvarp Stam verður í loftinu næsta mánuðinn, en útvarpsstöðinni er ætlað að auka sýnileika stams í samfélaginu sem og að skapa jákvæða umræðu um þátttöku þeirra sem glíma við talmein í ljósvakamiðlum. Árni Heimir Ingimundarson, formaður Málbjargar, verður í hlutverki útvarpsmanns og útvarpsstjóra á stöðinni nýju og hann hlakkar til að fá fólk í viðtöl. „Þetta gæti verið svolítið spennandi fyrir hlustendur að fylgjast með manni sem stamar taka drottningaviðtöl við þjóðþekkta Íslendinga," segir Árni. „Við verðum með framámenn á sviðum stjórnmála, viðskipta, menntamála og líka lista, en það gekk nú frekar illa að fá íþróttamenn í spjall svo ef einhver þekktur íþróttamaður vill slá til má hann endilega hafa samband." Meðal þeirra sem hafa boðað komu sína í hljóðver til Árna eru Hilmar Örn Hilmarsson, alsherjargoði, Ólafur Darri Ólafsson, leikari, Rannveig Rist, forstjóri og stjórnmálamennirnir Steingrímur J. Sigfússon, Brynjar Níelsson og Dagur B. Eggertsson. „Þetta verður allt á uppbyggilegum nótum. Ég mun spyrja gesti mína um bernsku þeirra, skólagöngu og starfsferil auk þess sem þeir fá allir að velja sér nokkur lög," segir Árni, en gestum hans gefst einnig kostur á að spyrja hann spurninga um stam. „Fólk er áhugasamt um stam og mörgum finnst það sérstakt. Það er mjög mikilvægt að það sé til staðar þolinmæði, bæði hjá þeim sem er að hlusta og einnig þeim sem stamar sjálfur." Útvarp Stam er aðgengilegt á tíðninni FM 98,3 auk þess sem starfrækt er Facebook-síða með öllum helstu upplýsingum um viðmælendur og dagskrá stöðvarinnar auk þess sem öll viðtölin verða aðgengileg þar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira