Fagráð um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. janúar 2014 14:39 Kristinn segir að fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki hér á landi séu margar. mynd/365
Blindrafélagið hefur komið á fót fagráði og vonast til eftir samstarfi við önnur samtök fatlaðs fólks. Tæpt ár er frá því að hugmyndin að ráðinu kom upp. „Umræðuna má annars vegar rekja til umræðu á norrænu vettvangi blindrasamtaka og hins vegar til málsins með Karl Vigni Þorsteinsson en hann hafði á sínum tíma komið að starfsemi innan Blindrafélagsins,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins. Í kjölfarið á því máli hafi þau farið að skoða hvernig taka ætti á málum ef ásakanir um kynferðisofbeldi eða annað ofbeldi yrðu bornar upp á vettvangi samtakanna. Sú vinna leiddi þau til þess að búa til eitt sameiginlegt fagráð sem snýr að því aðstoða fatlað fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi og styður það. Í desember óskaði Blindrafélagið eftir samstarfi við Félaga heyrnarlausra, Geðhjálp, Landssamtökin Þroskahjálp og Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra. Jafnframt hefur verið óskað eftir samstarfi við Stígamót. En Stígamót eru að fara af stað með tilraunaverkefni til eins árs um fræðslu á ofbeldi til fatlaðra.Fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki margarKristinn segir að fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki hér á landi séu margar. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðstæður fólks með fötlun séu dregnar fram sláandi upplýsingar sem sýna að fatlað fólk býr við mun meiri hættu á því að verða beitt ofbeldi en aðrir. Eins og komið hefur fram á Vísi taka þær Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, Embla Guðrúnar- og Ágústsdóttir, stjórnarformaður NPA miðstöðvarinnar og Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum, undir það. Kristinn segir að það hafi ekki verið fréttaflutningurinn af málinu þar sem karlmaður á níræðisaldri var sakaður um að beita þroskaskerta stjúpdóttur sína kynferðislegu ofbeldi í 40 ár sem hafi verið kveikjan af þessu. En fréttaflutningurinn í gær af því að málið gegn manninum hafi verið fellt niður hafi orðið til þess að þau vildu koma þessu að í fréttum. „Svo að fólki sé ljóst að við og fleiri samtöku séum að vinna að þessum málum,“ segir Kristinn.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira