Næsti bar leggur niður starfsemina Gunnar Leó Pálsson skrifar 6. mars 2014 10:30 Augustin Navarro Cortés, fyrrverandi eigandi Næsta bars, ætlar að endurvekja Kaffi list á næstunni. fréttablaðið/daníel „
Það hafa margir viljað kaupa staðinn undanfarna mánuði og því fór ég að hugsa að það væri kannski rétt að selja staðinn núna. Ég er að leita að öðrum stað og ætla að opna nýjan stað sem allra fyrst,“ segir Augustin Navarro Cortés, fyrrverandi eigandi Næsta bars sem var lokað um liðna helgi. Augustin opnaði Næsta bar árið 2008 og hefur staðurinn verið einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar þann tíma. „Það var mjög ánægjulegt að sjá að fólk tók það til sín að ég væri að fara loka staðnum, fólki þykir greinilega vænt um staðinn,“ segir Augustin. Staðurinn var einkar vinsæll því þar var ekki of hávær tónlist og þar var einnig mikið af góðum víntilboðum að finna. Hann segist elska fólk og hann hafi unnið á bar síðan hann var ungur. „Ég byrjaði að vinna á bar fjórtán ára gamall, á Benidorm. Ég flutti til Íslands árið 1986.“ Augustin hefur í hyggju að opna nýjan stað á næstunni. „Nýi staðurinn á að heita Kaffi list. Ég opnaði Kaffi list árið 1992 en hætti með hann árið 1999,“ segir Augustin sem ætlar að endurvekja gamla staðinn. Þar langar hann að bjóða upp á tapas og smárétti. „Mig langar líka að bjóða upp á rétt dagsins. Hafa einn veglegan rétt.“ Augustin ætlar að opna Kaffi list um leið og hentugt húsnæði finnst. „Ég elska þetta og þetta er mitt líf. Næsti bar var eins og kirkjan mín. Ég þakka öllum gestum mínum fyrir komuna og öllu mínu frábæra samstarfsfólki.“
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira