Neitar sök í báðum ákæruliðum Löke-málsins 19. ágúst 2014 10:51 Gunnar Scheving við komuna í héraðsdóm í morgun. Vísir/Valli
Lögreglumaðurinn Gunnar Scheving Thorsteinsson, sem ákærður er fyrir brot í opinberu starfi í Löke-málinu svokallaða, neitaði sök í báðum liðum ákærunnar þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögmaður Gunnars, Garðar Steinn Ólafsson, gerði þá kröfu að málinu yrði vísað frá en til vara að öðrum lið ákærunnar yrði vísað frá. Þá var óskað eftir því að þinghaldið yrði lokað. Dómari frestaði málinu til 28. ágúst og mun þá taka fyrir frávísunarkröfuna. Gunnar er annars vegar sakaður um að hafa á tímabilinu 7. október 2007 til 16. nóvember 2013 flett upp nöfnum 45 kvenna í málaskrárkerfi lögreglunnar og skoðað þar upplýsingar um konurnar, án þess að uppflettingarnar tengdust starfi hans sem lögreglumanns. Þannig hafi hann misnotað stöðu sína í því skyni að afla sér upplýsinga um konurnar. Telst brotið varða varða við 139. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í síðari lið ákærðurnar er hann sakaður um að hafa mánudaginn 20. ágúst 2012, sent tölvuskeyti á Facebook með upplýsingum sem leynt áttu að fara. Ákærði sendi nafn og lýsingu á 13 ára gömlum dreng sem ákærði hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður, auk upplýsinga um ástæðu afskiptanna. Telst þetta varða við 1. mgr. 136. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Tímaseting aðalmeðferðar verður ákveðin þann 28. ágúst þegar frávísunarkrafan verður tekin fyrir. Gunnar gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.
Tengdar fréttir Lögmaður og símamaður ekki lengur til rannsóknar Lögreglumaður sem grunaður var um óeðlilegar flettingar í málakerfi ríkislögreglustjóra, LÖKE enn til rannsóknar. 10. júlí 2014 12:23 Segir umfjöllun fjölmiðla byggja á ósannindum Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu svokallaða, Gunnari Scheving Thorsteinssyni, ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. Hann er sakaður um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í upplýsingakerfi lögregunnar, ásamt því að hafa sent félaga sínum upplýsingar um þrettán ára gamlan dreng sem hann hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður. 14. ágúst 2014 18:47 Sakaður um að hafa flett upp upplýsingum um 45 konur Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. 14. ágúst 2014 11:44 Stefna ríkinu vegna handtöku og húsleita Sakborningar í Löke málinu hafa ákveðið að höfða mál gegn ríkinu vegna tilefnislausrar handtöku. 11. júlí 2014 23:08 Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira
Lögmaður og símamaður ekki lengur til rannsóknar Lögreglumaður sem grunaður var um óeðlilegar flettingar í málakerfi ríkislögreglustjóra, LÖKE enn til rannsóknar. 10. júlí 2014 12:23
Segir umfjöllun fjölmiðla byggja á ósannindum Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu svokallaða, Gunnari Scheving Thorsteinssyni, ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. Hann er sakaður um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í upplýsingakerfi lögregunnar, ásamt því að hafa sent félaga sínum upplýsingar um þrettán ára gamlan dreng sem hann hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður. 14. ágúst 2014 18:47
Sakaður um að hafa flett upp upplýsingum um 45 konur Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. 14. ágúst 2014 11:44
Stefna ríkinu vegna handtöku og húsleita Sakborningar í Löke málinu hafa ákveðið að höfða mál gegn ríkinu vegna tilefnislausrar handtöku. 11. júlí 2014 23:08