ÍA fékk spænska aðstoð frá Ólafsvík og færist nær efstu deild Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. ágúst 2014 21:11 Skagamenn eru á leið aftur upp. vísir/daníel
ÍA vann Tindastól, 5-2, í 1. deild karla í fótbolta í kvöld, en GarðarGunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Skagamenn líkt og AndriAdolphsson. Með þessum úrslitum féll Tindastóll þó fimm umferðir séu eftir, en liðið er án sigurs í fyrstu 17 leikjum sumarsins. Á sama tíma unnu Ólsarar 1-0 sigur á HK með marki AlejandroLopez í uppbótartíma. Þar lét Viktor Unnar Illugason, leikmaður HK, reka sig út af á lokamínútunum. Ólsarar að gera vinum sínum á Vesturlandinu mikinn greiða. HK er í harðri baráttu við Skagamenn um annað sætið, en ÍA er nú með fimm stiga forskot á Kópavogsliðið þegar fimm leikir eru eftir. ÍA með 33 stig en HK 28 stig. Leiknir er langefst í deildinni með 40 stig, en toppliðið gerði 2-2 jafntefli við Selfoss á útivelli í kvöld. Staðan var 1-1 þegar EinarOttóAntonsson fékk rautt spjald í liði Selfoss á 40. mínútu, en manni færri og marki undir eftir að Hilmar Árni Halldórsson kom Leikni aftur yfir jöfnuðu heimamenn metin og tryggðu sér dýrmætt stig. Haukur Ingi Gunnarsson skoraði jöfnunarmarkið á 63. mínútu. KV er í fallsæti eftir tap gegn Haukum á útivelli, 3-2, á Ásvöllum. Hilmar Rafn Emilsson skoraði tvívegis fyrir Hauka og BrynjarBenediktsson eitt mark. IngólfurSigurðsson og Davíð Steinn Sigurðarson skoruðu mörk KV. Þrír leikmenn fengu rautt spjald í leiknum, en alls fóru sex rauð spjöld á loft í kvöld. Tindastóll er á botni deildarinnar með þrjú stig, en KV er sæti ofar með ellefu stig, fjórum stigum frá BÍ/Bolungarvík sem náði í gott stig gegn KA á AKureyri.Úrslit kvöldsins: KA - BÍ/Bolungarvík 1-1 ÍA - Tindastóll 5-2 Selfoss - Leiknir 2-2 Haukar - KV 3-2 Þróttur - Grindavík 2-1 Víkingur Ó. - HK 1-0 Úrslit og markaskorarar fengnir frá úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira