Reykvíkingur ársins saknar trjánna sinna Stígur Helgason skrifar 8. maí 2013 07:00 Theodóra Guðrún heimsótti svæðið aftur í gær. Þar liggja felld tré á víð og dreif. Í baksýn má sjá tvö húsanna við Rituhóla, sem íbúar töldu að trén byrgðu útsýni úr. Fréttablaðið/Pjetur „
Ég er sár og leið,“ segir Theodóra Guðrún Rafnsdóttir, kennari við Seljaskóla, sem öðrum fremur á veg og vanda af ræktun skógarins í Elliðaárdal sem íbúar við Rituhóla hjuggu stórt skarð í hinn 1. maí. Theodóra leiðbeindi hópi ungmenna sem plantaði þar trjám á sextán ára tímabili frá árinu 1979 og hefur síðan hirt um svæðið á hverju sumri ásamt hópi ungmenna með þroskaskerðingu á vegum Reykjavíkurborgar. Íbúar við Rituhóla, ofan við trjálundinn, tóku sig til hinn 1. maí og söguðu niður hundruð trjáa sem þeir töldu byrgja sýn úr húsum þeirra. Umsjónarmaður skógarins gagnrýndi þetta harðlega og kærði skógarhöggið til lögreglu. Theodóra rölti sjálf um svæðið daginn eftir, á fimmtudaginn í síðustu viku. „Mér varð um – ég fékk áfall. Þetta er alveg hræðilegt,“ segir Theodóra, sem í fyrra var útnefnd Reykvíkingur ársins fyrir störf sín við með ungmennunum við uppgræðsluna í Breiðholtshvarfi og Arnarbakka. Hún kveðst ekki gera sér grein fyrir því hversu mikil vinna hafi verið lögð í uppgræðslu og umhirðu trjánna. Eðli málsins samkvæmt hafi það hins vegar verið dágóður tími á rúmum þrjátíu árum. Theodóra segir nokkur ungmennanna sem hún vinnur með á sumrin hafa haft samband við hana eftir að fréttir bárust af skemmdarverkinu, miður sín yfir stöðunni. „Strax á föstudagskvöldið var byrjað að hringja. Ein spurði bara: Thea, hvað getum við gert?“ Hjá henni hafi hins vegar verið ósköp fátt um svör – þau þyrftu einfaldlega að bíða eftir viðbrögðum borgaryfirvalda. „Þau eru að sjálfsögðu sjokkeruð. Uppistaðan í hópnum er sömu krakkarnir ár eftir ár og auðvitað þykir þeim vænt um svæðið.“ Og Theodóru finnst miður að íbúarnir hafi valið að fara þessa leið. „Ég hugsa að fólkið sjái Esjuna úr gluggunum – en kannski vill það sjá ána, ég veit það ekki. Það sem manni þykir eiginlega verst er að fólkið kunni ekki að meta það skjól sem trén veita því.“
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent Fleiri fréttir Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ eða ekki Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Sjá meira