Vinnur úr viðtölum við starfsfólk og fanga 8. maí 2013 07:00 Róbert Spanó er settur umboðsmaður Alþingis. Hann fór og mat aðstæður á Litla-Hrauni í síðustu viku. „
Við erum að vinna við að greina þessar upplýsingar og við munum á næstu vikum taka ákvarðanir um hvort að við þurfum að fá frekari upplýsingar um þessi atriði sem ég er að skoða,“ segir Róbert Spanó, settur umboðsmaður Alþingis, um heimsókn sína á Litla-Hraun. Róbert fundaði með starfsfólki fangelsisins, heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir heilbrigðisþjónustu í fangelsinu, fulltrúum frá Fangelsismálastofnun og innanríkisráðuneytinu og Afstöðu, félagi fanga. Tilgangur heimsóknarinnar er að leggja mat á hvort aðstæður í fangelsinu, aðbúnaður fanga og verklag við ákvörðunartöku um réttarstöðu þeirra samrýmist ákvæðum stjórnarskrárinnar, Mannréttindasáttmála Evrópu, laga og reglugerða um fullnustu refsinga auk meginreglna stjórnsýsluréttar. Hann hafði til hliðsjónar skýrslu CPT-nefndarinnar (Evrópunefndar um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu) sem gerð verður opinber á næstu vikum. Róbert hitti einnig að máli fanga sem óskuðu eftir samtali. Hann segist vera að íhuga hvort tilefni sé til að eiga frekari fundi. „Þá með fulltrúum fangelsisyfirvalda og þá hugsanlega innanríkisráðuneytisins og velferðarráðuneytisins og þá sérstaklega hvað varðar heilbrigðismálefni fanga.“
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Sjá meira