Innlent

Bílanaust selt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lárus Blöndal Sigurðsson og meðfjárfestar hafa skrifað undir samning um kaup á rekstri Bílanausts. Fyrirtækið var áður í eigu N1, en kaupverð er trúnaðarmál.

Bílanaust selur varahluti og bílatengdar vörur og rekur stærstu bílavöruverslun landsins. Fyrirtækið var stofnað árið 1962.

Bílanaust rekur sjö verslanir. Stærsta verslunin er á Bíldshöfða 9 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×