Mengunarslys við Bláfjöll: Þurfa að grafa upp olíuna 8. maí 2013 15:26 Þarna má sjá bílastæðin við hlið skálans.
Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir að líklega þurfi að skipta um jarðveg þar sem olían féll til jarðar nærri Bláfjallaskálanum fyrr í dag. Þyrla hífði ker fullt af olíu um einn metra upp í loftið þegar festing gaf sig og 600 lítrar af olíu féll niður á bílastæðið við Bláfjallaskálann. Mengunin er afar hættuleg í ljósi þess að olían helltist niður á vatnsverndarsvæði en undir liggur grunnvatnsstraumur sem liggur niður í vatnsból í Reykjavík og í Hafnarfirði. „Maður vill ekki fá þetta niður þarna,“ sagði varðstjóri slökkviliðsins í samtali við Vísi en hann giskar á að 600 lítrar af olíu sé litlu meira en kemst fyrir í olíuflutningabíl. Dælubíll frá slökkviliðinu er á vettvangi og fjórir slökkviliðsmenn. Það er þó takmarkað hvað þeir geta að sögn varðstjórans, það þurfi að nota gröfu til þess að grafa mestu olíuna upp. Kristjana Kjartansdóttir, gæðaeftirlitsstjóri hjá Orkuveitunni, sem var á staðnum þegar óhappið varð, segir Orkuveituna hafa haft verulegar áhyggjur af því að fyrirtæki, sem rekur Þríhnúkagíg skammt frá, hafi fengið leyfi frá Kópavogsbæ til þess að flytja olíuna í ljósi þessi að svæðið er sérstaklega viðkvæmt.
Tengdar fréttir Mengunarslys við Bláfjöll - vatnsból í hættu Um 600 lítrar af olíu helltust niður þegar þyrla hugðist flytja ker fullt af olíu af bílastæði við Bláfjallaskála upp að Þríhnúkagíg nú fyrir stundu. 8. maí 2013 14:57 Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Mengunarslys við Bláfjöll - vatnsból í hættu Um 600 lítrar af olíu helltust niður þegar þyrla hugðist flytja ker fullt af olíu af bílastæði við Bláfjallaskála upp að Þríhnúkagíg nú fyrir stundu. 8. maí 2013 14:57