„Samfélagið allt var í afneitun á þessum tíma“ 8. janúar 2013 21:11 „
Ég að við þurfum að hafa í huga það tímabil sem er verið að fjalla um í þessum efnum, það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum tíma. Það sem kemur við mann í þessum málum eru þessi ítrekuðu brot. Ég ætla rétt að vona að slíkt sé ekki mögulegt í dag. En þáttur Kastljós í gær var góð áminning um það sem getur gerst þegar samfélagið heldur ekki árverkni sinni." Þetta segir Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann við þáttastjórnendur um umfjöllun síðustu daga um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson sem viðurkennt hefur að hafa brotið á hátt í 50 börnum á síðustu áratugum. „Það er alveg ljóst að samfélagið allt á þessum tíma var í afneitun um þessi vandamál," segir Bragi. „Þess vegna gátu þessir menn, Karl Vignir og fleiri, gengið í börn, ítrekað og árum saman." Bjarni segir að margt og mikið hafi verið gert í þessum málum á síðustu árum. „Það er lítill hópur kynferðisbrotamanna sem er haldinn alvarlegri barnagirnd. Það er kannski það sem við þurfum að horfast í augu við og koma upp almennilegu eftirlitskerfi sem nær utan um þessa einstaklinga sem ekki geta stjórnað eigin hvötum." Hann bendir á að ekkert slíkt kerfi sé fullkomið. Engu að síður sé augljóst að fjölþættar aðgerðirm sem miða að því að einangra þennan hóp síbrotamanna. Að sama skapi skiptir miklu máli að fylgja eftir málum slíkra níðinga eftir dóm eða afplánun. „En svo kemur að því að þessir menn ljúka sinni afplánun og snúa aftur út í samfélagið. Það eru ekki nægar lagaheimilidir til staðar til þess að unnt sé að halda uppi eftirliti með þeim. Sumir kæra sig ekki um meðferð."Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira