Lamaður kvikmyndagerðarmaður tók upp heimildarmynd í óbyggðum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 9. desember 2013 09:00 Hér sést Pétur í vinnuaðstöðu sinni þar sem myndin var klippt.
Tveggja og hálfs árs vinnu Péturs Guðmundssonar kvikmyndagerðarmanns að heimildarmyndinni Heild er nú lokið, þremur árum eftir að hann lamaðist í slysi í Austurríki. Pétur lét lömunina ekki stöðva sig og reif sig upp og byrjaði að vinna að myndinni, sem gerist að stórum hluta í óbyggðum landsins. Pétur vann myndina nánast alla sjálfur. „Það var bölvað vesen að ferðast um landslag sem var erfitt yfirferðar en ég náði því nú samt. Ég giska á að ég hafi unnið um áttatíu til níutíu prósent af myndinni sjálfur. Til dæmis keyrði ég um fimmtíu þúsund kílómetra um landið allt til að taka upp,“ útskýrir Pétur. Hann vonast til þess að geta notað ágóðann af myndinni til þess að fjármagna aðgerðir á sjálfum sér erlendis. Hann er ósáttur við þau úrræði sem lamaðir standa frammi fyrir á Íslandi og vonast til þess að geta breytt því með baráttu sinni. „Þetta er óásættanlegt vandamál, öll endurhæfing gengur út á að kenna fólki á hjólastól. Í staðinn fyrir að endurvekja mænuna er hún sett í líkkistu. Erlendis er verið að þróa aðferðir og ég er tilbúinn að verða tilraunadýr. Ég vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar, svo þeir sem slasist þurfi ekki að vera fastir við hjólastól um alla ævi.“ Pétur fjármagnaði myndina algjörlega sjálfur. „Þetta er allt úr mínum eigin vasa. En ég gat lækkað kostnaðinn með því að gera nánast allt sjálfur. Ég held að ég hafi borgað einum starfsmanni laun.“ Myndin er sérstök að því leyti að í henni er nánast ekkert talað. „Í myndinni heyrist ein setning og hún er í gegnum talstöð. Þetta er fyrsta heimildarmyndin um Ísland sem er án sögumanns. Tungumálið í myndinni er landslagið, náttúran og mannlífið,“ segir Pétur. Henni er skipt upp í fjóra hluta, eftir árstíðum. „Ég notast mikið við tímahleypu, sem er kvikmyndatækni sem byggir á því að taka stillimyndir og sýna þær á ákveðnum hraða. Ég sýni allar árstíðir í röð sem birtast á þremur dögum og þremur nóttum. Við tókum upp næturlífið í Reykjavík, snjóbretta- og brimbrettasenur og margt fleira. En náttúran er í aðalhlutverki, ég reyni að gera þessari mögnuðu eyju, sem Ísland er, góð skil,“ segir Pétur. Pétur á nú í viðræðum við kvikmyndahús um að sýna myndina og vonast til þess að geta sýnt hana erlendis líka. „Þessa mynd skilja allir, þetta er frábær landkynning, sýnir fegurð landsins.“
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira