Innlent

Persónulegri afmæliskveðjur - Gott ráð til að muna afmælisdaga

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Gott ráð fryrir þá sem vilja gefa vinum sínum persónulegri afmæliskveðjur.
Gott ráð fryrir þá sem vilja gefa vinum sínum persónulegri afmæliskveðjur.
Facebook hefur gert það að verkum að enginn þarf að muna neina afmælisdaga lengur. Í hvert sinn sem einhver á afmæli kemur upp áminning þess efnis á Facebook. Það er orðið jafn auðvelt að muna eftir því að óska móður sinni til hamingju með afmælið og gömlum félaga úr grunnskóla. Afmæliskveðjur er því orðnar nokkuð ópersónulegri en þær voru áður.

En það tekur ekki mikið meiri fyrirhöfn að sýna því fólki sem þér er raunverulega annt um að maður sé að hugsa til þess. Og hér er sagt frá því hvernig:

Fyrst „sync-ar“ (eða samræmir) maður Facebook tengiliði sína á snjallsímann. Þetta er auðvalt á flestum tegundum snjallsíma. Fyrir þá sem eru með iPhone, þá þarf að fara í settings og velja „update all contacts“ til þess að fá Facebook upplýsingar vina sinna. Þannig birtast allir afmælisdagar sjálfkrafa á Google dagatalið eða á iCal.

Næst þarf að fara í gegnum alla 12 mánuðina og velja afmælisdaga nánustu vina og fjölskyldu og setja áminningu tildæmis tveimur vikum fyrir afmælisdaginn.

Þegar áminningin svo kemur í símann, þá skelliru afmæliskorti í póstinn og þannig geturu sýnt þeim sem þér er hvað kærast um að þú hugsir til þeirra og gerir afmælisdag viðkomandi eflaust enn betri fyrir vikið. Þetta gerir afmæliskveðjuna mun persónulegri.

Upplýsingar eru fengnar af síðunni Gizmodo.com




Fleiri fréttir

Sjá meira


×