Upp­gjörið: FHL - Víkingur 0-4 | Víkingur valtaði yfir botnliðið

Helena Lind Ólafsdóttir skrifar
Linda Líf skoraði eitt marka Víkings í dag.
Linda Líf skoraði eitt marka Víkings í dag. Vísir/Anton Brink

Víkingur R. vann öruggan sigur gegn heimakonum í FHL í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði í 9. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Lokastaða leiksins var 4-0 og fer Víkingur R. heim með þrjú mikilvæg stig.

Fyrri hálfleikur fór frekar rólega af stað, bæði lið áttu nokkrar góðar tilraunir á markið en endaði það að mestu fram hjá mörkunum. Íris Vala Ragnarsdóttir náði sér hins vegar í gult spjald á 7. mínútu þar sem hún hljóp í hliðina á Emmu Steinsdóttur og tók hana niður með sér.

Nokkrar fleiri marktilraunir fóru fram hjá þangað til á 15. mínútu þegar Erna Guðrún Magnúsdóttir hélt aftur að Björgu Gunnlaugsdóttur og togaði hana niður. Gult spjald var dæmt á það brot. Ekki gerðist margt annað í fyrri hálfleik fyrir utan nokkrar tilraunir á markið í viðbót.

Því var markalaust í hálfleik og bæði lið áttu mikið eftir inni. FHL voru farnar að reyna meira á stutt og þétt spil með einstöku löngum sendingum á sína sóknarmenn og Víkingur R. reyndi á þétt spil upp kantana og gott spil fram við teig heimamanna.

Seinni hálfleikur fór hratt af stað þar sem Rósey Björgvinsdóttir fékk högg í andlitið strax á 46. mínútu leiksins. Hiti var kominn í leikmenn og áttu sér stað mörg brot á stuttum tíma í byrjun seinni hálfleiks.

Fyrsta mark leiksins kom á 66. mínútu þar sem Bergdís Sveinsdóttir fann opið svæði í marki FHL og kom honum inn fyrir. Sjaldan er ein báran stök og fylgdi Linda Líf Boama því hratt á eftir á 69. mínútu og kom gestum í tveggja marka forystu.

Ekki var þar nóg komið fyrir gestina og kom þriðja mark leiksins á 72. mínútu þar sem Keelan Terrell varði skot sem svo datt niður beint fyrir framan Dagný Rún Pétursdóttur og setti hún hann inn af öryggi. Víkingur var þar af leiðandi komnar í örugga þriggja marka forystu eftir þessa markaöldu.

Nokkrar skiptingar voru gerðar hjá liði FHL til þess að reyna að koma sér aftur í gang eftir þessi mörk. Á 82. mínútu tókst Hrafnhildi Eik Reimarsdóttur ekki að hreinsa sinn teig og endaði boltinn frá henni í marki FHL. Þetta sjálfsmark var síðasta mark leiksins og lokastaðan 4-0 fyrir Víking R.

Atvik leiksins

Mörg klunnaleg brot áttu sér stað í þessum leik, hiti í leikmönnum og dýrmæt stig í boði. Höggið sem Rósey fékk á andlitið var ekki fallegt en einnig var mikið um hrindingar og óþarfa snertingar.

Stjörnur og skúrkar

Bæði lið spiluðu af miklum krafti og þrátt fyrir mörg brot var íþróttamennskan alltaf á réttum stað. Calliste Brookshire átti gríðarlega sterk hlaup upp völlinn og erfitt var að halda í við hana. Vörn Víkings var hins vegar virkilega sterk og skilaði það miklu fyrir gestina.

Dómarar

Flautu dagsins bar hann Brynjar Þór Elvarsson, með honum voru þeir Nour Natan Ninir og Elías Baldvinsson. Unnu þeir vel saman og lítið var um mótþróa þegar dæmt var.

Stemning og umgjörð

Mikil stemning var í Fjarðabyggðahöllinni í dag. Menn voru með trommur og gjallarhorn sem héldu stemningunni í hámarki allan tímann. Margt var af fólki og alltaf gaman að sjá góða mætingu á leikjum fyrir austan.

Keelan Terrell er markvörður FHL.Vísir/Anton Brink

„Þetta var klárlega annasamur leikur í dag, ég er svolítið búin á því. Ég finn til með liðsfélögum mínum sem voru þarna frammi að vinna hörðum höndum fyrir þessum marklausu 66. mínútum… við vorum að vinna eins hart og við gátum. Ég er bara uppgefin og við vorum óheppnar með að fá ekki stig í dag,” sagði Keelan Terrell þegar hún var spurð hvernig henni leið eftir leikinn.

„Við vorum að reyna að halda þessari góðu tilfinningu þessar fyrstu 65 mínútur þar sem við vorum ekki komnar með mark á okkur. Ég tek ofan af mér hattinn fyrir varnarmennina okkar í dag, við vorum með góða vörn í teignum, við hreinsuðum marga hættulega bolta og var mikil hjálp í þeim. Það var góð tilfinning að vera með þessar marklausu 65 mínútur,” bætti hún svo við.

„Þetta gerðist allt svo hratt, það var mjög svekkjandi. Mér fannst óheppilegt að nokkrir leikmenn hjá okkur slökktu bara á sér í dag. Ein mistök verða að mörgum og við gátum einhvern veginn aldrei komið okkur til baka eftir það, “sagði Keelan þegar hún var svo spurð af því hvað hefði gerst eftir að þær fengu á sig þetta fyrsta mark.

John Andrews þjálfari Víkinga.Vísir/Pawel

„Við erum með ákveðnar reglur fyrir það þegar við skorum mark eða fáum á okkur mark, við misstum hlutina svolítið í dag. Mér finnst við ekki hafa spilað neitt betur endilega heldur en í síðustu 7-8 leikjum. Það var æðislegt hins vegar þegar leikmennirnir náðu hins vegar þessum mörkum, það var frábært, það var góð tilfinning. Þær áttu það skilið. Ég þarf samt að gefa heiður til FHL - þær voru frábærar sérstaklega í þessar fyrstu 50-55 mínútur leiksins en þetta voru góðar niðurstöður fyrir okkur,” sagði John Andrews, þjálfari Víkings eftir leik dagsins.

„Ég er bara góður. Sama hvort við vinnum, töpum eða gerum jafntefli. Við vinnum gríðarlega hart að þessu frá mánudegi til föstudags fyrir leiki um helgar og er ég mjög ánægður fyrir hönd stelpnanna. Fyrir mig sem þjálfari er það bara vinna, vinna, vinna, næsti leikur, næsti leikur og ég er mjög ánægður með hvernig liðið hefur verið að spila saman. Þær fengu frábærar lokatölur í dag, loksins! - vel verðskuldað eftir alla vinnuna sem þær leggja í þetta,” svaraði John þegar hann var spurður að því hvernig honum leið eftir svona leik.

„Við höfum alltaf verið frekar jákvæð niðri í okkar sæti. Ekki stakt neikvætt orð allan tímann. Við sáum í dag hvað gerist þegar maður spilar með bros á vör, vörnin okkar var einnig frábær. Þetta snýst ekki bara um að skora mörk - vörnin okkar og miðjumenn voru frábærir í dag. Þetta var hópefli og vil ég þakka öllum sem tóku þátt og einnig Kalla… þeir settu upp mjög erfiðan leik fyrir okkur í dag,” bætti hann við.

„Mörkin hjálpuðu , en eins og ég sagði við erum alltaf jákvæð. Jafnvel þótt við töpum 4-5 leikjum í röð skiptir engu máli. Við komum bara aftur inn, vinnum hart að og held ég að jákvæðnin hafi ekki endilega haft áhrif á lokaniðurstöðuna en einnig helst þá að boltinn hafi farið inn fyrir í dag og öll þessi vinna sem þær hafa lagt í leikinn og ég gæti ekki verið stoltari af þeim,” svaraði John að lokum þegar hann var spurður hvort jákvæðnin hefði haft áhrif á sigurinn í dag.

Björgvin Karl, þjálfari FHL.Vísir/Guðmundur

„Já bara mjög svekkjandi, reyndar á móti mjög góðu víkings liði sem spilaði virkilega vel sérstaklega seinni hálfleik. Við hefðum þurft að halda fókus lengur og vera hættulegri í skyndisóknum sem við náðum ekki að vera og þá því miður var þetta bara ekki nóg,” sagði Björgvin Karl, þjálfari FHL, þegar hann var spurður um leikinn.

„Þú ert búinn að leggja það mikið á þig að reyna að halda hreinu til þess að eiga möguleika á því að vinna og fá stig og við vorum búin að standa okkur mjög vel í því allavega í fyrri hálfleik og svo fáum við á okkur mark og greinilega brotnuðu leikmenn og lítið hægt að gera - 10 mínútna kafli þar sem þær skora þrjú mörk og það er bara þannig,” svaraði Björgvin þegar spurt var hvað hefði gerst eftir fyrsta mark Víkings.

„Við förum inn í alla leiki með plan og reynum að halda líka í þessi prinsipp sem við erum með og erum að spila ungum leikmönnum og erum að reyna að byggja upp fótbolta hérna á austurlandi og við verðum að halda því áfram eins vel og gera það eins vel við getum. Þótt það séu erfið úrslit þá verðum við bara að halda áfram að stíga á bensíngjöfina,” sagði Björgvin Karl að lokum þegar hann var spurður um framhald sumarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira