Uppgjörið: Valur - Fram 1-2 | Endurkomusigur hjá Fram Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 15. júní 2025 15:50 Fram fagnar. Vísir/Anton Brink
Leikurinn fór rólega af stað og mátti sjá bæði lið reyna að kortleggja hvort annað. Valur fékk fyrsta færið en skotið beint á markmann sem var ekki í teljandi vandræðum með skotið. Það var jafnræði með liðunum lengst af í fyrri hálfleiknum. Fram átti flotta kafla en náðu þó ekki að komast í nein alvöru færi. Valur kom sér í flottar stöður en vantaði oft herslumuninn. Það dró til tíðinda á 39. mínútu leiksins þegar Valur sótti upp hægri vænginn og komu boltanum inn á teig þar sem Jordyn Rhodes var mætt og braut ísinn fyrir Val. Eftir markið settu Valskonur í annan gír og hótaði strax öðru marki en Fram náði að halda aftur af Valsliðinu og Valur leiddi með einu marki gegn engu í hálfleik. Fram mættu sprækar út í seinni hálfleikinn og náði jöfnunarmarki á 54. mínútu þegar Una Rós Unnarsdóttir átti magnaðan sprett að marki Vals og laumaði boltanum úr þröngu færi framhjá Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Vals. Á 65. mínútu leiksins átti Valur slæma sendingu inn á miðjuna sem Murielle Tiernan tók á móti og átti frábæran snúning og keyrði inn á teig vals og skoraði laglegt mark sem kom Fram yfir í leiknum. Fram var ekki langt frá því að tvöfalda forystu sína stuttu síðar en Dominiqe Bond-Flasza setti boltann þá í stöngina. Undir lok leiks fékk Valur hornspyrnu sem Kamila Pickett komst inn í og keyrði upp allan völlinn og reyndi að lyfta yfir Tinnu Brá í marki Vals sem náði að slá boltann yfir. Valur stál heppnar að fá ekki á sig þriðja markið og í sömu andrá var flautað til leiksloka. Fram vann gríðarlega sterkan endurkomusigur á Val með tveimur mörkum gegn einu. Atvik leiksins Bæði mörk Fram væri hægt að taka fyrir hérna. Virkilega vel unnin mörk. Fyrra markið er frábær sprettur hjá Unu Rós Unnarsdóttur og síðara markið er frábær snúningur og vinnusemi sem skilar marki frá Murielle Tiernan. Stjörnur og skúrkar Una Rós Unnarsdóttir átti flottan leik í dag. Var með flottar spyrnur og ógnaði sífellt. Murielle Tiernan var Valskonum einnig erfið viðureignar. Hjá Val var Fanndís Friðriksdóttir hvað hættulegust en Valsliðið datt niður í seinni hálfleiknum. Dómararnir Sigurður Ragnar Guðlaugsson sá um flautuna í dag og honum til aðstoðar voru Bergur Daði Ágústsson og Kristófer Bergmann. Fínasta frammistaða hjá teyminu í dag. Ekki erfiður leikur að dæma endilega en þeir komust vel frá sínu. Stemingin og umgjörð Það var þokkalegasta mæting í stúkunni í dag. Fengum fínasta veður svo það fór vel um alla. Umgjörð Vals er svo alltaf í toppmálum. Sjoppan opin og eitthvað fyrir alla. „Er sálrænt því fótboltagetan er klárlega til staðar“ Matthías Guðmundsson í leik dagsins.Vísir/Anton Brink „Mjög svekkjandi. Maður er nátturlega hundfúll, sárt og lang síðan við höfum unnið“ sagði Matthías Guðmundsson annar þjálfara Vals eftir tapið í dag. „Fyrri hálfleikurinn var góður. Er mjög ánægður með hann en seinni hálfleikurinn var jafn lélegur og fyrri hálfleikur var góður“ Valur voru með yfirhöndina í fyrri hálfleiknum en það var allt annað uppi á teningnum í þeim síðari en hvað er það sem orsakar það? „Krafturinn og líkamlegur styrkur þeirra fannst mér koma í ljós. Við vorum klárlega undir þar. Einhverskonar ótti við að tapa sýndist manni. Tæknilegir feilar og einhver ótti í liðinu“ Það mátti sjá á liði Vals að lélegt gengi að undanförnu er farið að íþyngjast svolítið á liðinu. „Það er þannig. Í íþróttum þá er liðssálin þannig að hún þrífst á að vinna fótboltaleiki. Það eykur sjálfstraust og það er það sem er að hjá okkur. Það er sálrænt því fótboltagetan er klárlega til staðar í þessu liði“
Besta deild kvenna Valur Fram Íslenski boltinn Tengdar fréttir „Það er trú, power, orka og bara gæði í þessu Fram liði“ Fram gerðu sér góða ferð niður á Hlíðarenda þar sem þær heimsóttu Val í níundu umferð Bestu deild kvenna. Eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik snéru Fram taflinu við í þeim síðari og fóru með sterkan sigur af hólmi 1-2. 15. júní 2025 16:33
„Það er trú, power, orka og bara gæði í þessu Fram liði“ Fram gerðu sér góða ferð niður á Hlíðarenda þar sem þær heimsóttu Val í níundu umferð Bestu deild kvenna. Eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik snéru Fram taflinu við í þeim síðari og fóru með sterkan sigur af hólmi 1-2. 15. júní 2025 16:33