Birta ábendingar frá neytendum á vefnum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. febrúar 2013 05:00 Neytendur geta sett ábendingar inn á vef ASÍ. „
Fór í blóðprufu 28. desember 2012, þá kostaði hún 1.800 krónur, þurfti aftur í blóðprufu í gær 26. febrúar 2013 og þá kostaði hún 1.900 krónur. Ríkið að standa vörð um heilbrigðiskerfið eða hvað!" Ofangreind ábending er ein af mörgum sem almenningur hefur sett inn á vefinn www.vertuaverdi.is sem opnaður var núna í vikunni. Um er að ræða átak aðildarfélaga ASÍ sem ætlað er að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar. „Ábendingarnar koma úr ýmsum áttum og varða opinbera aðila, þjónustufyrirtæki og verslanir. Í sumum tilfellum er um umtalsverðar hækkanir að ræða," segir Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, og lýsir um leið yfir ánægju sinni með viðbrögð almennings. Hún segir ekki verða kannað í öllum tilvikum hvort neytendur fari rétt með. „Þetta er fyrst og fremst hugsað til að veita aðhald og skapa umræðu en við munum fylgjast með því að velsæmis sé gætt." Henný bendir á að þegar verðbólgan sé mikil og verðlag óstöðugt sé enn erfiðara fyrir neytendur að fylgjast með. „Það verður hætta á ákveðinni deyfð hjá þeim og auðveldara fyrir fyrirtæki að koma að hækkunum sem kannski er ekki hægt að réttlæta með beinum hætti. Þetta verður svolítið frítt spil."
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira