Stjórnarskrárfélagið kvartar yfir fundaröð HÍ Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. febrúar 2013 15:25
Stjórnarskrárfélagið gagnrýnir Háskóla Íslands harðlega fyrir einsleitni við val á framsögumönnum á fundum sem skólinn hefur haldið um fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá Íslands. „Flestum hörðustu gagnrýnendum á tillögur stjórnlagaráðs og ferlið í heild sinni hefur verið boðið að flytja mál sitt og sumum oftar en einu sinni," segir í kvörtun Stjórnarskrárfélagsins til Háskóla Íslands. Dæmi séu um að frummælendur hafi sjálfir engar rannsóknir birt á þessu sviði eða þeim sértæku málefnum sem erindi þeirra fjalli um. Hins vegar virðist margir aðrir fræðimenn hafa verið sniðgengnir þótt svo að kunnátta þeirra og sérsvið gefi ástæðu til að fá álit þeirra með í umræðuna. Þá segir Stjórnarskrárfélagið að það sé jafnframt einkennilegt að höfundar fyrirliggjandi tillagna um stjórnarskrárbreytingar, fyrrverandi fulltrúar í stjórnlagaráði, skuli ekki fengnir til að skýra tillögurnar fyrir áheyrendum eða a.m.k. einhverjum þeirra boðið til að sitja í pallborði til að svara og leiðrétta misskilning, sem einatt hefur komið upp á þeim fundum sem þegar hafa verið haldnir. Margir þessara fulltrúa eru auk þess sérfræðingar í stjórnarskrármálum eða einstökum þáttum þeirra. Segir Stjórnarskrárfélagið að ágætt dæmi um þetta sé fundurinn í dag, undir yfirskriftinni "Ísland, fullveldið og alþjóðasamfélagið". Dr. Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor, hafi mikið fjallað um fullveldið í rannsóknum sínum og doktorsritgerð. Það veki furðu að hann sé ekki á meðal þátttakenda á þessum tiltekna fundi og gæfist þá um leið tækifæri til að heyra frá fyrrum stjórnlagaráðsmanni.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Sjá meira