Karlmanni bannað að koma nálægt sextán ára stúlku Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. febrúar 2013 17:09 Stúlkan var í neyðarvist á Stuðlum.
Hæstiréttur dæmdi í dag 32 ára gamlan karlmann í nálgunarbann. Hann má ekki koma að sextán ára gamalli unglingsstúlku í 50 metra radíus á meðan hún er á meðferðarheimilinu á Stuðlum né heldur þar sem hún er í langtímeðferð eða þar sem hún býr. Hann má heldur ekki hafa samband við telpuna í gegnum netið eða í gegnum sms. Það var barnavernd Reykjavíkur sem fór fram á nálgunarbannið. Stúlkan hefur verið vistuð í langtímameðferð frá því í byrjun febrúar. Í kröfu barnaverndar kemur fram að stelpan hafi verið í harðri neyslu fíkniefna og í félagsskap sem talinn er hafa verið henni hættulegur. Telpan hafi litla innsýn í vanda sinn og þá hættulegu stöðu sem hún sé í. Hafi það verið mat barnaverndar að til þess að ná tökum á vanda hennar væri nauðsynlegt að vista hana á langtímameðferðarheimil fjarri þeim félagsskap sem hún sæki í og hafi það verið gert með hennar samþykki. Gerð sé krafa um að nálgunarbannið gildi á meðan vistun telpunnar á vegum barnaverndaryfirvalda vari eða til 4. febrúar 2014. Í kröfu barnaverndar kemur fram að stúlkan hafi hitt manninn þann 10. febrúar síðastliðinn eftir að hún var vistuð á langtímameðferðarheimili. Með henni í för hafi tvær aðrar telpur sem einnig dvelji á meðferðarheimilinu og hafi þær allar þáð vímuefni sem maðurinn hafi boðið þeim. Þá hafi varnaraðili afhent telpunni 5 gr. af vímuefninu marijúana sem hún hafi tekið með sér til baka á meðferðarheimilið. Daginn eftir hafi varnaraðili sótt telpuna í skólann við upphaf skóladags. Þau hafi stundað kynlíf og maðurinn hafi keypt handa henni fatnað, snyrtivörur, skartgripi, látið hana hafa farsíma og 10 þúsund krónur í peningaseðlum. Í gæsluvarðhaldskröfunni kemur jafnframt fram stúlkan hafi orðið vitni af grófum ofbeldisverkum s.s. barsmíðum mannsins og fylgt honum eftir þegar hann hafi ásamt vinum sínum innheimt vímuefnaskuldir.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira